Uppeldi og menntun - 01.07.2013, Page 42
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(2) 201342
tÓnmenntakennsla í íslenskUm grUnnskÓlUm
við um tiltekna viðmælendur eða aðstæður. Spurningalistinn var unnin af rannsak-
andanum og tók mið af fyrri rannsóknum meðal tónmenntakennara, þannig að bæta
mætti við þær upplýsingar sem þegar voru fyrir hendi. Rannsakandi og aðstoðar-
maður hans tóku viðtölin og sá hvor um umritun á sínum viðtölum. Rannsakandinn
greindi gögnin og beitti lýsandi greiningu á lokuðu spurningarnar en þemagreiningu
við úrvinnslu svara við hálfopnum spurningum. Lýsandi greining fólst í því að flokka
og telja svör við lokuðum spurningum sem lutu til dæmis að bakgrunni og menntun
viðmælenda. Þemagreiningin var gerð þannig að fyrst voru allir textar með svörum
brotnir niður eftir þema eða umfjöllunarefni textans, án þess að inntak væri skoðað
sérstaklega. Á næsta stigi voru þemu flokkuð eftir inntaki. Þar á eftir voru þemu og
inntak þeirra borin saman milli viðtala, svo unnt væri að draga saman hvenær þemu
hefðu sameiginlegt inntak og hvenær ekki. Að lokum voru niðurstöður fyrir hvert
þema dregnar saman í stutta texta sem lýstu inntakinu í svörum viðmælenda.
niÐUrstÖÐUr
Hér á eftir verða helstu niðurstöður rannsóknarinnar kynntar. Framsetning verður
með þeim hætti að heiti yfirkafla endurspegla lykilspurningar rannsóknarinnar er
lúta að starfssviði, viðhorfum og persónulegum áherslum tónmenntakennaranna. Til
þess að gera framsetninguna skýrari eru nokkur þemu sem fram komu við greiningu
gagnanna dregin fram í titlum undirkafla.
Starfssvið tónmenntakennara
Almennt hlutverk
Allir viðmælendur nema einn sögðu sitt helsta hlutverk vera að kenna náms-
greinina tónmennt. Þessi eini sagði hlutverk sitt fyrst og fremst vera það að
halda utan um tónlist og tónlistarlífið í sínum skóla. Það virtist í raun vera hlut-
verk margra hinna tónmenntakennaranna en aðkoma og umsjón með tónlistar-
lífi í skólunum er í misföstum skorðum. Algengt er að auk tónmenntakennsl-
unnar sjái tónmenntakennari um samsöng, kórstarf, uppsetningu söngleikja
og aðstoði við tónlistaratriði á bekkjarkvöldum og/eða foreldraskemmtunum.
Undirleikur
Oft er leitað eftir undirleiksfærni tónmenntakennara við ýmsar uppákomur og
skemmtanir á vegum skólanna. Píanó er algengasta undirleikshljóðfærið hjá átta
kennurum af þessum tólf og þrír nota gítar eða annað við undirleik. Flestir virðast líta
á það sem gefið að leitað sé til þeirra með undirleik. Aðeins einn tónmenntakennari í
úrtakinu sagðist ekkert geta spilað undir söng en benti jafnframt á það að við skólann
væri annar kennari sem sinnti því hlutverki. Svo virðist sem undirleikur undir söng
sé mikilvægur þáttur í mörgum íslenskum skólum.