Uppeldi og menntun - 01.07.2013, Blaðsíða 143
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(2) 2013 143
margrét tHeodÓrsdÓttir
Kona í kennarahópnum í Tjarnarskóla hóf störf fyrir rúmu ári. Fjölskylda hennar
var þá nýflutt til Íslands eftir fimm ára dvöl í Bretlandi og Danmörku. Hún segir mér
að það sé gríðarlegur munur á því hvernig foreldrar komi að skólastarfi í þessum
tveimur löndum annars vegar og á Íslandi hins vegar. Hún segir að í þeim skólum sem
hún starfaði í eða börnin hennar sóttu hafi nánast verið 100% mæting beggja foreldra
á alls konar viðburði af hálfu skólans þar sem óskað var eftir að þeir mættu. Þetta
hefur verið mér umhugsunarefni. Hvers vegna er þessi hugsunarháttur ekki við lýði
hjá okkur Íslendingum?
flEiri saMEiginlEgir sigrar
Nú eru talsverðar breytingar framundan í kjölfar nýrrar aðalnámskrár þar sem til
dæmis mat á skólastarfi, breytt nálgun og aukið vægi mælinga á alls konar færni-
þáttum kemur inn. Starf skóla framtíðarinnar á að standa á yfirlýstum grunnstoðum.
Lýsing á þeim hefur verið sett á blað og kynnt í skólum landsins. Foreldrar þurfa að
sjálfsögðu að vera með á nótunum. Sem löngum fyrr eiga skólarnir auðvitað að axla
mikla ábyrgð á þessum breytingum. Ábyrgð okkar er vissulega mjög mikil og við
sem störfum í skólum drögum auðvitað vagninn með þeim sem leggja línurnar en
það þarf að efla það viðhorf foreldra að þeir eigi að vera til staðar þegar umræður
og fræðsla eða kynningar á skólastarfinu eru annars vegar. Með sama hætti þarf að
endurspegla þá sameiginlegu ábyrgð sem skólinn og foreldrar bera (líka samkvæmt
lögum) að tryggja sem best samspil um velferð og heilbrigði, svo sem mataræði, að
barnið/unglingurinn mæti á réttum tíma í skólann, fái nægan svefn, sé studdur í því
að bera sífellt aukna ábyrgð eftir því sem ofar dregur í skólakerfinu, efli sjálfsmynd
sína, styrki samskiptahæfni og þar fram eftir götunum (bls. 15–47). Aukin samvinna
af þessu tagi hefði án efa mjög jákvæð áhrif á grunnstoðirnar heilbrigði og velferð.
Hér má til dæmis nefna hversu vel tókst til þegar foreldrar og starfsmenn skóla tóku
höndum saman við að vinna gegn unglingadrykkju á sínum tíma. Frábær árangur!
Það þarf að vinna fleiri slíka sigra!
Einnig er lofsvert að foreldrasamtök hafa staðið fyrir góðum kynningum fyrir for-
eldra um breyttar áherslur í skólastarfinu. Sú nálgun og frumkvæði er svo sannarlega
af hinu góða.
sÖgUþráÐUrinn bEri OKKUr gOtt Vitni
Ég segi alltaf við nemendur mína að vellíðan, öryggi og góð mannleg samskipti séu
okkar keppikefli í skólastarfinu. Á fyrstu dögum skólastarfs á hverjum vetri hitti ég
alla nemendur í skólanum og legg upp í nýjan skólakafla með því að ræða við þá um
heilsu, heilbrigði og velferð, góð samskipti og öryggi. Þessir þættir hafa sannanleg
áhrif á námsárangur og þroska og möguleika þeirra á því að blómstra í því sem þeir
taka sér fyrir hendur.