Uppeldi og menntun - 01.07.2013, Page 141
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(2) 2013 141
margrét tHeodÓrsdÓttir
stefnumótun hnykkt á því hversu vellíðan í skólastarfi er mikilvæg. Að hún sé grunn-
stoð, rétt eins og að tileinka sér þekkingu, leikni og færni á ýmsum sviðum. Það er vel.
HraUstlEiKaMErKi
Ég sé að hið almenna skólakerfi hefur tekið miklum og afar jákvæðum breytingum á
þeim rúmum þremur áratugum sem ég hef starfað í grunnskóla. Það eru mörg merki
um það. Ég verð þó að viðurkenna að sýnina á það sem aðrir eru að gera hef ég fyrst
og fremst fengið með skoðun utan frá. Mína skólainnviði þekki ég auðvitað út og inn
en það sem ég sé að er að gerast í skólamálum almennt færir mér heim sanninn um að
fagmennska og fjölbreytilegt skólastarf er staðreynd á Íslandi.
aÐ láta DraUMinn VErÐa aÐ VErUlEiKa
Á hverjum tíma spretta upp hugmyndir og áherslur, oftast í takt við tímann. Við María
Solveig, vinkona mín og samstarfskona í rúm tuttugu ár, stofnuðum Tjarnarskóla
árið 1985. Sumt af því sem við lögðum upp með til þess að styðja við unglingana í
skólanum hefur einnig verið tekið upp í hinu „almenna“ skólakerfi. Ég ætla að nefna
þrennt: Einstaklingsmiðað nám, möguleika á að sinna „heimanámi“ í skólanum og þá
námsgrein sem við höfum alltaf kallað mannrækt í Tjarnarskóla en kom löngu síðar
inn í námskrá grunnskólanna undir nafninu lífsleikni.
Allt frá fyrsta skólaárinu okkar höfðum við séð að heilbrigði og velferð eru með
því mikilvægasta í hinum svo nefnda Tjarnarskólatakti, sem við tölum gjarnan um
þegar umhyggju, menningu og heimilislegt yfirbragð skólastarfsins ber á góma með
öllu sínu manneskjulega ívafi sem við kjósum að hafa yfir og allt um kring. Börn og
ungmenni verja stórum hluta dagsins í skóla og það gefur auga leið að þar á sér stað
mikilvægt uppeldi þar sem góð samskipti eru þungamiðjan ásamt víðtækum undir-
búningi fyrir lífið og tilveruna. Samspil og góð samvinna milli skóla og uppalenda
vegur einnig þungt.
aÐ tala UppHátt – lEita lEiÐa Í saMEiningU
Öflugt upplýsingastreymi frá skólanum stuðlar að því að foreldrar geti fylgst með
hag og framvindu unglingsins í skólanum. Það er okkar vinnulag að láta okkur hag
nemenda varða í nánast öllu tilliti. Þá koma foreldrar einnig sterkir inn. Sú sam-
vinna birtist meðal annars í því í Tjarnarskóla að þegar viðhorfskannanir Skóla- og
frístundasviðs Reykjavíkurborgar hafa verið lagðar fyrir foreldrana hefur ánægjustig-
ið reynst hátt. Við erum auðvitað afar glöð yfir því.