Skessuhorn - 17.12.2014, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Óskum Akurnesingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
Gleðileg jól
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Einn kunnasti og snjallasti hagyrð-
ingur landsins er Ragnar Ingi Að-
alsteinsson. Ragnar Ingi er sem
kunnugt er Jökuldælingur að upp-
runa og af þeim ættstofni sem vel
þekkir til kvæða- og ljóðagerðar.
Dalamönnum er hann vel kunn-
ur eftir að hafa starfað við kennslu
í allmörg ár í héraðinu og sumar-
dvalar þar. Ragnar Ingi hefur sent
frá sér margar ljóðabækur frá því sú
fyrsta, Hrafnkela, kom út 1974. Nú
fyrir skömmu kom út bókin Ljóð-
stafaleikur sem gefin er út í til-
efni 70 ára afmæl-
is Ragnar Inga sem
var í upphafi þessa
árs. Bókinni er skipt
í allmarga efnis-
flokka um ljóða-
gerð Ragnars Inga.
Meðal annars má
þar sjá kafla eins og;
heima, á mjúku nót-
unum, heilabrot,
hugarvíl og spurnar-
tónar, neysla í föstu
og fljótandi og um-
hverfið, landið og ég.
Einn kafli er af hag-
yrðingamótum, ann-
ar um galgopasög-
ur og þá er þáttur í
bókinni um ljóða-
gerð Ragnars Inga.
Ragnar Ingi steig ein-
mitt fram með Hrafn-
kelu þegar mikið um-
rót var í ljóðagerð á
Íslandi. Hart var deilt
um nýbylgjuna sem
þá var í óhefðbundnu
ljóðformi, svokölluð-
um atómkveðskap og honum teflt
gegn hefðbundna ljóðforminu.
Ragnar Ingi hefur trúlega af
kerskni sinni haft síðasta ljóðið í
Hrafnkelu í nýja stílnum, atóminu.
Ljóðið heitir Postludium og þar
hafnar skáldið öllum hefðbundnu
einkennum rímsins. Fyrstu ljóðlín-
urnar eru eftirfarandi:
Eins og harðsporar
eru ljóð mín á órímaðri öld.
Eins og harðsporar.
Vindar nýrra tíma
hafa feykt burtu forminu
gamla.
Guðmundur G Hagalín skrif-
aði langan ritdóm um Hrafnkelu.
Taldi bæði kost og löst á bókinni og
Postludium fannst Hagalín merki
þess að skáldið væri að kikna und-
an óbilgjörnum kröfum tímans;
„að um hann og hina hefðbundnu
ljóðagerð hafi frá málvinum og að
minnsta kosti óbeint frá ýmsum
miðaldra og ungum menntamönn-
um, skáldum og leirhnoðum leikið
nepja, sem hafi haft á hann svipuð
áhrif og hinn víðkunni heilaþvott-
ur.“ Vísar Guðmundur til þess að
hefðbundinn kveðskapur hafi um
skeið fengið óblíðar viðtökur en
nýjungar byr undir vængi. Jóhann
Hjálmarsson skáld sá ástæðu til að
svara þessum ritdómi og varð því
Hrafnkela tilefni stuttrar ritdeilu á
sínum tíma. þá
Ég get ekki látið það hjá líða í að-
draganda jólahátíðarinnar að hvetja
íbúa sveitarfélagsins til að versla í
heimabyggð.
Þegar litið er til þess hve fjölbreytt
flóra verslunar og þjónustu býðst
okkur hér í þessu frábæra sveitarfé-
lagi ætti engin ástæða að vera til ann-
ars en að njóta jólaundirbúnings hér
í Borgarbyggð. Það eru hverju sveit-
arfélagi mikið hagsmunamál að íbú-
um og gestum þess bjóðist fjölbreytt
þjónusta og verslun. Það er óhætt að
segja að þar séum við vel sett.
Það er ekki sjálfsagt mál að geta
gengið að því vísu að versla ferska
matvöru, ýmis konar sérvöru, kom-
ast á verkstæði, veitingahús, kaffi-
hús, snyrtistofu og hárstofu. Versla
í hannyrðabúð, blómabúð, fatabúð-
um, raftækjaverslunum og apóteki.
Hvað þá að hafa aðgang að frábærri
íslenskri hönnunarvöru og matvöru
úr héraði. Heimsækja og njóta frá-
bærra safna og ólíkra menningarvið-
burða um allt sveitarfélagið.
Hlutverk okkar sem íbúa sveitar-
félagsins er mikilvægt þegar kemur
að því að velja þjónustu. Við eigum
stóran þátt í því að halda uppi fjöl-
breyttu menningarlífi, þjónustu og
verslun. Sú menning sem við sköp-
um í sveitarfélaginu við jólaundir-
búning með börnunum okkar skilar
sér til þeirra sem ánægjuleg minning
og hefð. Njótum þess að fara sam-
an í búðir, kaffihús, snyrtingu, söfn
og fleira í jólaundirbúningnum og
hitta á vini og kunningja í jólaskapi.
Ég vil þakka þeim fjölmörgu aðilum
sem starfa í sveitarfélaginu við versl-
un og þjónustu fyrir frábært starf og
vil hrósa þeim fyrir að bjóða okkur
íbúum uppá góða og metnaðarfulla
þjónustu allt árið.
Ég vona að allir eigi eftir að eiga
ánægjulegar stundir í desember með
fjölskyldu og vinum og óska ykkur
gleðilegra jóla.
Guðveig Eyglóardóttir.
Höf. er oddviti framsóknarmanna í
Borgarbyggð.
Pennagrein
Jólaundirbúningur
í Borgarbyggð
Kápa bókarinnar Ljóðstafaleikur.
Ljóðstafaleikur frá Ragnari Inga