Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2014, Síða 70

Skessuhorn - 17.12.2014, Síða 70
70 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Reynir að vekja áhuga sem flestra á tónlistinni Rætt við Heiðrúnu Hámundardóttur tónmenntakennara á Akranesi. Menningarverðlaun Akraness voru afhent í áttunda sinn fyrir skömmu. Þau hafa verið veitt einstaklingi eða hópum sem þótt hafa skarað fram úr í menningarlífi á Akranesi og að þessu sinni hlaut Heiðrún Hámundadóttir viðurkenninguna. Það kom fáum á óvart að Heiðrún fengi slíka viðurkenningu enda vel að henni komin. Hún hefur und- anfarin ár varið miklum tíma til að vinna með ungu fólki á Akranesi, kveikja áhuga þess fyrir tónlist og hvetja það áfram til góðra verka. Heiðrún er tónmenntakennari í Brekkubæjarskóla en kennir einnig við Tónlistarskólann á Akranesi og Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hún hefur því komið víða við í tónlist- aruppeldi Akurnesinga. Blaðamað- ur Skessuhorns settist niður með Heiðrúnu á aðventunni og fékk að kynnast henni aðeins. Sótti víða í sönginn Heiðrún er fædd og uppalin á Skaganum. Þar ólst hún upp hjá ömmu sinni og afa, þeim Karli Ragnarssyni, sem nú er látinn, og Ernu Benediktsdóttur. Hún seg- ist snemma hafa sótt í tónlistina. „Ég var á dagheimili í Akurgerði, þar sem mikið var sungið. Reyndar sótti ég svo í allt þar sem var sung- ið. Ég fór í KFUM og KFUK og skátana. Ég fór meira að segja á samkomur hjá hvítasunnusöfnuði því þar var mikið sungið og föndr- að. Svo var ég auðvitað í kór líka,“ segir hún um upphafið á tónlistar- áhuganum. Heiðrún fór snemma í tónlistarskólann og lærði þar á blokkflautu og svo píanó. „En píanóið var greinilega ekki mitt hljóðfæri. Ég hætti því í smá tíma í tónlistarskólanum en lærði svo á klarínett þegar ég varð eldri og fór þá í lúðrasveitina. Þegar ég var ell- efu ára kenndi amma mér fyrstu gripin á gítar og á unglingsárunum fór ég í hljómsveitarstúss.“ Byrjaði snemma að kenna Á framhaldsskólaárunum fékk Heiðrún tækifæri til að kenna tón- list í fyrsta sinn. „Eldri nemendur sem voru í lúðrasveitinni kenndu byrjendunum. Það var fyrsta reynsla mín af því að kenna tón- list. Ég var í fjölbraut á þessum tíma. Ég fann fljótt að mig lang- aði að vinna við alhliða tónlistar- kennslu og nú vinn ég við það í bland við einkakennsluna.“ Eftir nám í Fjölbrautaskóla Vesturlands fór hún í tónmenntakennara- deild Tónlistarskólans í Reykjavík. Hún bjó í Reykjavík í sex ár en er nú búsett á Akranesi ásamt eigin- manni sínum Kristleifi Brandssyni og tveimur börnum þeirra; Snorra 20 ára og Heklu níu ára. Fyrst eft- ir að hjónin komu aftur á Skagann kenndi Heiðrún í Tónlistarskólan- um á Akranesi en fljótlega hóf hún störf við Grundaskóla að auki. „Ég kenndi þar í þrjú ár. En ég stjórn- aði lúðrasveitinni í tónlistarskól- anum á þeim tíma og það var mik- ið að gera í því. Þetta voru tvær til þrjár sveitir, þar sem 40 manns voru í elstu sveitinni. Ég hætti því á endanum að kenna í Grundaskóla og einbeitti mér að lúðrasveitun- um. Þetta var mjög skemmtileg- ur tími. Við fórum til dæmis í tvær utanlandsferðir, á lúðrasveitarmót og keppni í Gautaborg og svo í tónleika og skemmtiferð til Spánar sem var líka nokkurs konar kveðju- ferð fyrir mig,“ segir Heiðrún sem fluttist með fjölskylduna til Dan- merkur stuttu síðar, árið 2006. Árin í Danmörku „Við vildum prófa að búa annars staðar, snúa blaðinu aðeins við. Ég var skiptinemi í Danmörku þegar ég var yngri og talaði þess vegna dönsku,“ útskýrir Heiðrún. Í Danaveldi hélt Heiðrún áfram að mennta sig. Hún fór í tónlistarhá- skóla í nám sem kallast á dönsk- unni „Rytmisk musik og bevæ- gelse“ eða rytmatónlist og hreyf- ing. „Ég lærði þar tónlist frá Afr- íku, Suður-Ameríku og Kúbu. Ég lærði mikið á trommur, trommu- takta, söng og samspil. Líkt og við notum nú mikið á tónlistar- brautinni og ég nýti þetta í tón- listarkennslunni.“ Heiðrún segir fjölskylduna hafa átt þrjú góð ár í Danmörku. Kristleifur hefði lært sjúkraþjálfun áður en skipti um gír úti og lærði þar margmiðlun- arhönnun með áherslu á vefforrit- un. Í dag starfar hann hjá Skapa- lóni í Reykjavík. „Hekla var bara eins og hálfs árs þegar við fluttum út en Snorri var í 7. bekk. Þetta var ekki auðvelt fyrir hann fyrstu mánuðina. Hann er klár strákur en þarna rakst hann aðeins á vegg og þurfti í fyrsta sinn að hafa fyrir hlutunum. En ég held að hann hafi haft rosalega gott af þessu og hann býr enn að því í dag.“ Setur sig í spor barnanna Eftir að heim var komið fór Heið- rún í 50% stöðu hjá tónlistarskól- anum og einnig hjá Brekkubæj- arskóla. „Það hefur reyndar und- ið mikið upp á sig og ég er í meiri vinnu en það í dag.“ Hún segir að lítið hafi verið til af hljóðfærum í Brekkubæjarskóla þegar hún byrj- aði að kenna þar en í dag sé tón- menntastofan full af græjum. All- ir nemendur skólans í 1.-7. bekk fá tónmenntakennslu einu sinni í viku. Á unglingastigi geta þau farið í tónlistarval sem unnið er í samstarfi við Grundaskóla og tón- listarskólann. „Þar geta þau lært á hljóðfæri og sungið. Svo eru gerð- ar hljómsveitir og haldnir tón- leikar í lok annar,“ útskýrir Heið- rún. Aðaláherslan í tónmennta- kennslunni er samspil. Öll kennsl- an er verkleg og nemendur upp- lifa tónlistina í gegnum hreyfingu, söng og sampil. „Meginmarkmið- ið með kennslunni er að vekja áhuga hjá krökkunum og gefa þeim tækifæri til tónlistarflutn- ings. Ég legg áherslu á þetta vegna þess að ég reyni að hugsa þetta eins og ég hefði sjálf viljað hafa þetta sem krakki. Ég vildi prófa allt og þótti síður en svo skemmti- legt að vera í bóklegum tíma í tón- mennt. Krakkarnir sjá öll hljóð- færin í stofunni og verða að sjálf- sögðu að fá að njóta þeirra. Þann- ig setur maður sig í spor barnanna. Þetta á að vera gaman og á að vekja áhuga sem flestra á tónlistinni til að virkja sem flesta,“ segir hún og brosir. Vil hafa puttana í mörgu Heiðrún hefur í seinni tíð komið víða við og tekið að sér mörg ólík verkefni. Hún hefur verið annar af verkefnisstjórum verkefnisins Ungir - Gamlir ásamt Flosa Ein- arssyni og hafa þau farið á liðn- um árum með hóp nemenda frá báðum grunnskólunum á Akra- nesi í tónlistarferðir til Svíþjóð- ar. Hún stjórnaði Skólahljómsveit Akraness um árabil með myndar- brag. Auk þess samdi hún og leik- stýrði söngleiknum „Elskaðu frið- inn“ ásamt Samúel Þorsteinssyni samkennara sínum sem settur var upp á vegum Brekkubæjarskóla í Bíóhöllinni í maí 2012. Nýj- asta verkefnið sem Heiðrún kem- ur að er verkefnið Europe-12 po- ints, European song Contest. Það er verkefni sem styrkt er af Eras- mus+ og er samvinnuverkefni milli átta skóla víðsvegar um Evrópu. „Það hefur alltaf hentað mér best að vera með puttana í mörgu. Ég er enn þannig, þrífst best ef ég er með alls konar verkefni. Ég reyni jafnvel að finna mér aukaverkefni, Erasmus er dæmi um það,“ seg- ir hún. Vináttan stendur uppúr Þónokkrir af nemendum Heiðrún- ar í gegnum tíðina hafa á einhvern hátt haldið áfram í tónlistinni. Hún segist alltaf vona að krakk- arnir haldi áfram, þó það sé ekki nema bara fyrir sjálfa sig heima. „Ég reyni að gera þau sjálfstæð í uppeldinu. Þeim eru allir vegir færir ef þau læra að vinna, læra að skapa tónlist og læra að vera sjálf- stæð.“ Heiðrún segir starfið gef- andi og að vináttan sem oft vill myndast á milli hennar og nem- enda standi upp úr. „Maður teng- ist vissum hópum og eignast góða vini í krökkunum. Þegar ég fékk verðlaunin í haust fékk ég til dæm- is skilaboð frá fólki sem var hjá mér í lúðrasveit hérna áður fyrr. Mér þótti ósköp vænt um það,“ segir hún. Keypti bassa í stað mjólkur Heiðrún lifir og hrærist í tónlist meira og minna allan daginn. Hún segir að stundum sé gott að hafa þögn þegar hún kemur heim og er búin að vera í tónlistinni allan dag- inn. „En ég hlusta á tónlist í frí- um og um helgar og er algjör alæta á tónlist. Það er sama hvaða tón- listarstefna eða tegund það er, það eru til góð og vond lög,“ segir hún. Heiðrún kennir á klarínett við tón- listarskólann en hún getur spilað á flest hljóðfæri. Hún er þó hógvær þegar blaðamaður spyr hana út í þá sálma. „Það fer nú eftir því hvaða merkingu þú leggur í að kunna á hljóðfæri,“ segir hún og skell- Heiðrún Hámundardóttir tónmenntakennari á Akranesi. Heiðrún með menningarverðlaunin. Ljósm. þá. Hekla og Snorri, börn Heiðrúnar. Myndin er tekin þegar fjölskyldan fór og sótti sér lifandi jólatré um síðustu helgi. Ljósm. úr einkasafni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.