Skessuhorn - 17.12.2014, Qupperneq 97
97MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Óskum Vestlendingum
gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári
Þökkum viðskiptin á
árinu sem er að líða SKESS
U
H
O
R
N
2
01
4
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi - s: 430 2200 - nepal@nepal.is
Sendum Vestlendingum og
landsmönnum öllum
okkar bestu óskir um gleðileg
jól og farsælt nýtt ár
rakarastofa eins og Hinriks meira
en staður þar sem menn koma til
að láta klippa sig og snyrta. Hún er
öðrum þræði staður þar sem menn
koma saman til að spjalla. Hinrik
gefur þó ekki mikið út á það. Trún-
aður við viðskiptavini er nokkuð
sem ber að virða. „Það er auðvitað
svo að hér fyrr á árum var þessi rak-
arastofa nánast mitt á aðal verslun-
arstað bæjarins. Hér voru verslanir
allt í kring í næsta nágrenni og mik-
il umferð. Síðan var mikil atvinnu-
starfsemi í slippnum og niður við
höfn. Þetta hefur auðvitað breyst.
En hér hafa margir litið við í áranna
rás allt til þessa dags og margt verið
skeggrætt,“ segir hann kíminn.
Vatnaskil á lífsleiðinni
Aldamótaárið 2000 dró ský fyr-
ir sólu í lífi Hinriks og fjölskyldu
hans. Fjóla eiginkona hans greind-
ist með krabbamein, aðeins 56 ára
að aldri. Við tók tímabil langvar-
andi veikinda þar til Fjóla lést 10.
ágúst 2008. Eftir það bjó Hinrik
einn á Akranesi um nokkurra ára
skeið.
Síðastliðið vor tók hann sig svo
upp og flutti frá Akranesi, yfir fló-
ann til Reykjavíkur til að hefja þar
sambúð með Hrafnhildi Þórarins-
dóttur. „Hrafnhildur er ættuð úr
Svarfaðardal og starfar sem sjúkra-
liði hjá Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna í Kópavogi (DAS). Nú í
vor seldi ég raðhúsið á Jaðarsbraut
hérna á Akranesi þar sem ég hafði
búið í 20 ár og flutti suður. Við sett-
umst að í Úlfarsárdal ofan við Graf-
arholtið í Reykjavík. Það er alveg
yndislegt að búa þarna. Þetta er eins
og að vera uppi í sveit. Grafarholt-
ið blasir þarna við, áin Korpa liðast
þarna um 80 metrum framan við
húsið. Ég kann afskaplega vel við
mig þarna. Við búum á efstu hæð
í glænýju þriggja hæða húsi. Vissu-
lega var fallegt útsýni á Jaðarsbraut-
inni yfir Faxaflóann og Langasand.
Þarna er það þó ekki síðra þó það sé
öðruvísi og ekkert haf. Síðan snýr
húsið alveg rétt á móti sólinni. Ég
er ekki nema svona rétt tæpan hálf-
tíma á leiðinni til og frá vinnunni
uppi á Akranesi. Ek bara úr Úlfars-
árdalnum, niður hjá Bauhaus-versl-
uninni og þá er ég kominn á Vest-
urlandsveginn og engar hindranir
á leiðinni alla leið upp á Skaga. Ég
fer að heiman um áttaleytið. Svo
er ég kominn aftur heim á kvöld-
in milli hálf sjö og sjö. Þetta hentar
ákaflega vel. “
Gráupplagður raf
magnsbíll í vinnuna
Hinrik segist ekkert telja það eft-
ir sér að aka svona á milli Akraness
og Reykjavíkur. „Ég er með lokað
á mánudögum, hef opið frá þriðju-
dögum til og með föstudögum frá
9 til 18. Þannig keyri ég fjórum
sinnum á viku, fram og til baka. Á
mánudögum hef ég lokað.“
Sem gamall bílasali og bílaáhuga-
maður ákvað Hinrik að prófa nýj-
ung við þessi tímamót. Til að stunda
vinnuferðirmar réðist hann í sumar
í kaup á rafmagnsbíl af Nissan Leaf-
gerð. Þessir bílar eru nýmæli en
verða stöðugt vinsælli. Hinrik hrós-
ar bílnum óspart. „Rafmagnsbíll-
in er að reynast mér afar vel. Þeg-
ar á heildina er litið þá eru kaup-
in á þessum bíl mjög hagstæð. Nýr
kostaði hann vissulega 4,9 milljón-
ir en það er ódýrt að reka svona bíl.
Ég eyði um fimm þúsund krónum
á mánuði í rafmagn á hann og það
með öllum þessum akstri. Ég hef
ekið þessum bíl 9.000 kílómetra
síðan ég keypti hann. Það er mjög
góður kraftur í þessum bíl, hann er
ótrúlega öflugur. Að sjálfsögðu eru
rafbílar takmarkandi að því leyti að
maður fer ekki nema um 150 kíló-
metra á hverri hleðslu. En þeg-
ar maður er fyrst og fremst að fara
svona styttri vegalengdir, eins og að
fara milli Akraness og Reykjavíkur
eða í innanbæjarakstri, þá eru svona
bílar alveg frábær valkostur. Þessir
bílar fá frítt í öll bílastæði, þeir bera
lægstu bifreiðagjöld og það kost-
ar lítið að hlaða þá. Ég hef hann
bara í hleðslu þegar hann stendur
heima og svo hér í vinnunni meðan
ég er að klippa. Til viðbótar þess-
um bíl þá eigum við svo bensínbíl
en rafbíllinn er sá vinsælli á heim-
ilinu. Hrafnhildur er mjög hrifin
af honum. Hún vill helst hafa hann
sjálf til innanbæjaraksturs á Reykja-
víkursvæðinu,“ segir hann hlæjandi.
„Þessir rafmagnsbílar eru alveg grá-
upplagðir.“
Engin áform um
að hætta
Við förum að ljúka spjallinu. Árin
hafa liðið hratt á litlu rakarastof-
unni. Það er margs að minnast. Að
þremur árum liðnum hefur rakara-
stofa verið starfrækt í þessu merka
húsi í samfleytt 80 ár. „Á næsta ári
hef ég starfað hérna í 50 ár. Á þess-
um tíma hef ég klippt allt að fimm
ættliði Skagamanna í beinan karl-
legg. Það eru jafnvel dæmi um
að menn hafi hvergi verið klippt-
ir annars staðar. Hingað koma þó
ekki bara Skagamenn, heldur menn
á öllum aldri alls staðar af Vestur-
landi.“
Í gegnum árin hefur Hinrik starf-
að einn á stofunni eða haft starfs-
mann með sér. Haraldur sonur
hans lærði iðnina hjá föður sínum.
Fyrir nokkrum árum fluttist hann
hins vegar til Árósa í Danmörku
með fjölskyldu sína. Þar rekur hann
eigin rakarastofu. „Ég hef að mestu
starfað einn hér síðustu árin. Það
var ætlunin að Haraldur tæki við
stofunni af mér en við sjáum til
hvað verður. Hann og fjölskylda
hans hafa komið sér vel fyrir í Dan-
mörku. Bjarney dóttir okkar Fjólu
fór hins vegar ekki í háriðnina
eins og við hin. Hún lærði grafíska
hönnun, býr í Reykjavík og starfar
sjálfstætt við það,“ segir Hinrik.
„Það er alveg nóg og ágætt að
gera. Ég ætla að halda áfram eitt-
hvað enn. Heilsan er góð. Á meðan
svo er get nú ekki verið þekktur fyr-
ir að leggja frá mér skærin á meðan
Jón Hjartarson lærismeistari minn
er enn að hér uppi á Kirkjubraut!
Það er líka ánægja sem fylgir þessu
starfi, mikill og góður félagsskapur
bæði við viðskiptavini og þá sem
koma hingað og kíkja í kaffispjall,“
segir Hinrik léttur á brún nýorðinn
sjötugur.
mþh
Rakarastofa Hinriks undir fullu tungli eitt síðdegi nú á aðventunni.
Fjóla Veronika Bjarnadóttir sem Hinrik var kvæntur í 44 ár. Þau eignuðust son og
dóttur. Fjóla lést langt fyrir aldur fram 2008.
Hinni rakari við rafmagnsbílinn góða þar sem hann stendur í hleðslu fyrir utan rakarastofuna.