Skessuhorn


Skessuhorn - 17.12.2014, Síða 101

Skessuhorn - 17.12.2014, Síða 101
101MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 eftirmála þótt ég fengi reyndar föð- urlegt tiltal hjá Ríkharði Jónssyni skipstjóra.“ Bátalíf frá Akranesi og togaramennska frá Reykjavík Bátalífið á Skipaskaga og tilviljana- kennd farmennska með samvinnu- mönnum átti þó ekki alls kostar við Eirík. Hann vildi komast á togar- ana. Þeir voru flestir fyrir sunn- an. Hann flutti til Reykjavíkur og fór að vera á togurunum þar. „Ég réði mig á Hallveigu Fróðadótt- ur RE. Sá dallur var alltaf á kafi. Maður skipti kannski tvisvar um al- klæðnað á vaktinni. Maður var allt- af á kafi í sjó. Eitt sinn fengum við á okkur brot á Halanum og togarinn fór alveg á hliðina. Ég var við spil- bremsurnar, á grindinni sem kallað var. Ég rétt náði í handfangið á einu af stýrishjólumum á spilunum. Það var sko dauðahald. Hefði ég misst það þá hefði ég farið í hafið. Eftir að ólagið var gengið yfir og togar- inn hafði rétt sig af þá lét skipstjór- inn, Sigurður Þórarinsson, telja mannskapinn til að fullvissa sig um að engum okkar hefði skolað fyrir borð. Hausarnir voru taldir og tal- an stemmdi.“ Þetta var árið 1959. Íslending- ar stóðu eins og svo oft fyrr og síð- ar í hatrömmu landhelgisstríði. Nú var deilt um útfærslu landhelginn- ar í 12 sjómílur. Bretar settu lönd- unarbann á íslensk fiskiskip í bresk- um höfnum. Það hélt þó ekki. Þeir á Hallveigu Fróðadóttur hnekktu þessu og færðu þannig Ísland skrefi nær sigri í deilunni. „Eftir að hafa fiskað í skipið einn túrinn í nóvem- ber, sigldum við til Grimsby á Eng- landi án þess að hafa nokkuð sam- band við neinn með loftskeytum. Við vildum láta reyna á þetta. Það urðu engin mótmæli að heitið gat. Skipið var tekið inn og við náðum að selja. Með þessu var löndunar- bannið rofið.“ Komst í gott togarapláss Eiríkur segir að árin í kringum 1960 hafi verið óttalegt skrap- tímabil á togurunum. Oft var erf- itt að manna skipin. „Það var aldrei neitt fiskirí að heitið gat. Ég hætti á Hallveigu og var um tíma á togar- anum Hvalfelli. Guðbjörn Jensson (Bubbi Jens) var skipstjóri þar. Þar var líka bróðir hans, Ketill Jensson, menntaður óperusöngvari frá Ítalíu sem fékk hvergi vinnu og fór á tog- ara. Sjálfur var ég bara á reki á út- hafi lífsins, átti hvergi heima. Bjó um borð í togurunum, líka þeg- ar við vorum í landi. Öll þénustan fór bara í skemmtanir og brennivín. Við vorum margir mjög hneigðir til víns. Það fór að svífa á menn þeg- ar við nálguðumst höfn af einskærri tilhlökkun að geta nú dottið ærlega í það. Næst réði ég mig á Ágúst GK. Þar var áhöfnin að stórum hluta bara unglingar. Þetta var auð- vitað bara algert rugl.“ Hinn ungi sjómaður sem þarna var um 23 ára gamall vildi komast í betra pláss með vöskum mönnum. Nú bar svo til að Tryggvi Ófeigs- son útgerðarmaður, hafði keypt togarann Gerpi frá Neskaupstað og skírt hann Júpíter. „Hjalti Gíslason skipstjóri á Ágústi GK átti að taka við sem fyrsti stýrimaður á Júpít- er RE þar sem Bjarni Ingimars- son var skipstjóri. Hann bauð mér og tveimur öðrum að koma með sér yfir. Ég var ráðinn sem neta- maður á Júpíter. Ég var ágætur í netum, bætingum og þess háttar. Þetta var árið 1960. Þarna átti ég heima og kunni vel við mig. Um borð var fastur kjarni af körlum og Bjarni ótrúlegur kafteinn og annál- aður fiskimaður. Ég hefði farið út í hvaða óveðri sem var á Júpíter, með Bjarna við stýrið. Þarna blotn- aði maður aldrei. Skipið var ótrúleg sjóborg enda þýsk smíði og undan- fari Víkings AK, Sigurðar RE og þeirra systurskipa frá Þýskalandi.“ Hitti lífsförunautinn og náði fótfestu Það var ekki ofmælt að þó Eiríkur væri knár togarasjómaður í góðu skipsrúmi þá var hann enn hálfgert rekald í ólgusjó lífsins, eins og hann nefndi hér að framan. „Margir tog- aramenn gengu hreinlega frá sér með sukki og svalli á þessum árum. Ég var heppinn. Það er enginn vafi á því að þetta líf hefði eyðilagt mig ef ég hefði þarna ekki hitt og náð saman við Dagnýju Hauksdóttur, sem síðar varð eiginkona mín og lífsförunautur.“ Það er saga að segja frá því. „Þeg- ar ég var á vertíð hérna á Akranesi 1957 hitti ég Dagnýju fyrst. Hún vann þá með skóla í Alþýðubrauð- gerðinni sem þá var. Það var nú ósköp saklaust. En ég fór þó á togar- ana fyrir sunnan. Tengslin slitnuðu, en ég gleymdi henni aldrei. Syðra kvæntist ég svo konu frá Færeyj- um. Það samband varði ekki lengi og við skildum, en eignuðumst tvo syni. Hún fór til Færeyja og skildi strákana eftir þar á barnaheimili, en ég vissi ekkert um það fyrr en löngu seinna. Annar þeirra býr nú í Danmörku en sá yngri í Þórshöfn í Færeyjum. Þeir hafa báðir heimsótt okkur eftir að þeir urðu fullorðnir, síðast nú í sumar.“ Eiríkur útskýrir að Dagný hafi á þessum sama tíma og hann reyndi sitt misheppnaða hjónaband, far- ið í sambúð með manni á Akra- nesi og eignast son og dóttur. „Svo er það í apríl 1962 að ég er í landi á Júpíter í Reykjavík að ég sé Dag- nýju á göngu á Laugaveginum. Ég stekk út úr bílnum og heilsa upp á hana. Til að gera langa sögu stutta þá eru nú orðin rúmlega 52 ár síð- an. En þarna var komin mín fyrsta viðspyrna í lífinu. Ég fann ankerið. Óreglunni og ístöðuleysinu mátti alveg fara að ljúka þarna. Já, ég var ansi blautur og hefði getað endað eins og svo margir góðir drengir fé- lagar mínir sem voru á sjó á þess- um árum.“ Siglt til hjálpar Elliða Árið 1962 var gæfuár hjá Eiríki á fleiri sviðum en því persónu- lega. „Fyrr þetta sama ár, í febrú- ar var það, björguðum við á Júpíter áhöfninni á togaranum Elliða SI frá Siglufirði. Við vorum að slóa undan brjáluðu veðri út við Eldey. Þá verð- um við um borð varir við að Júpít- er er settur á fulla ferð. Bjarni skip- stjóri keyrði norður á Jökultungu og byrjaði að slóa þar aftur. Enginn skildi hvað hann var að fara, kannski ekki einu sinni hann sjálfur. Þegar neyðarkallið berst svo frá Elliða þá erum við næstir þeim. Það er greint skilmerkilega frá þessu í nýútkom- inni bók. Atburðarásinni þar er rétt lýst eins og ég man þetta. Eins og það horfði við mér þá var Júpít- er settur aftur á fulla ferð um leið og vitað var hvar Elliði var í neyð. Skipið skalf stafna á milli hjá okk- ur. Þegar við komum að Elliða þá var allt í tómu tjóni hjá þeim. Þeir voru búnir að missa báða björgun- arbátana. Annar þeirra slitnaði frá með tveimur mönnum um borð sem týndust. Hinn slitnaði líka frá og hvarf. Tveir ungir piltar hopp- uðu út á fleka, hurfu út í sortann í einn og hálfan tíma og komu svo rekandi til baka. Það skildi enginn hvernig það gat gerst.“ Þeir um borð í Júpíter sáu El- liða aldrei almennilega í sortanum. „Hann var kominn alveg á hliðina og við sáum bara smá ljóstýru.“ Línuskot upp á líf eða dauða Það var augljóst að lítill tími var til stefnu. Siglufjarðartogarinn var að sökkva. Menn urðu að hafa snör handtök. „Við prófuðum eitt skot með línubyssu. Ég skaut því. Við hæfð- um skipið en ekki á réttum stað. Öll áhöfnin var í einum hnapp aft- an við stýrishúsið og náði ekki til línunnar. Þá var ákveðið að þeir skyldu skjóta línu til okkar. Þeir voru með línubyssu, gátu skotið og hittu í fyrsta skoti. Við náðum lín- unni. Hefði það ekki gerst þá hefðu þeir allir farist þegar Elliði fór nið- ur. Þetta var svo naumt. Við blésum upp gúmmíbjörgunarbát sem þeir drógu svo yfir til sín. Hugmynd- in var að draga þá svo aftur yfir til okkar. Þegar þeir voru allir komn- ir í bátinn þá lét loftskeytamaður- inn hjá þeim vita að við mættum byrja að draga bátinn yfir til okk- ar. En það var svo stíft og erfitt, maður. Það sem hafði gerst var að við höfðum gefið aðeins of mikinn slaka á spottanum, hann brugðist utan um eitt skrúfublaðið á Elliða og við vorum því í reynd að remb- ast við að draga gúmmíbjörgunar- bátinn aftur undir síðuna á Siglu- fjarðartogaranum í áttina að skrúf- unni.“ Þegar þarna er komið sögu er Elliði alveg við það að sökkva. Sem betur fór áttuðu þeir á Elliða sig á því hvað hafði gerst. „Báts- maðurinn hjá þeim var með hníf Togarinn Júpíter. Mikið happaskip um áratugaskeið í íslenska fiskiskipaflotanum. Glaðir togarajaxlar af Júpíter gera sér dagamun á Þórskaffi 1960. Frá vinstri: Eddi Skúla, Eiríkur, óþekktur maður og Stjáni II. vélstjóri. Fastur í ís í Eystrasalti á Hauki (gamla Freyfaxa) um jólin 1986. Eiríkur stendur sjálfur við skipshlið. Flutningaskipið Valur var systurskip Svans sem Eiríkur og skipsfélagar hans voru hætt komnir á í ofsaveðri við Færeyjar í janúar 1989. Eiríkur og Dagný með tveimur af barnabörnum sínum þeim Jónasi Kára og Ingunni Eiríksbörnum vorið 2014.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.