Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2004, Page 3
Læknablaðið
THE ÍCELANDIC MEDiCAL lOURNAL
Tólfta ráðstefnan um rannsóknir
í líf- og heilbrigðisvísindum
í Háskóla íslands
Ráðstefna um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum í Háskóla íslands er nú haldin í tólfta
sinn. Hún er haldin sameiginlega af læknadeild, tannlæknadeild. lyfjafræðideild og í fyrsta
sinn einnig hjúkrunarfræðideild. Umsjón með ráðstefnunni hefur Vísindanefnd læknadeildar,
tannlæknadeildar og lyfjafræðideildar Háskóla íslands auk fulltrúa frá hjúkrunarfræðideild.
Ráðstefnan er haldin í Öskju, nýju og glæsilegu náttúruvísindahúsi Háskóla íslands.
Að þessu sinni var ákveðið að fjölga yfirlitsfyrirlestrum og gefa þannig möguleika á að kynna
viðameiri verkefni en hægt er að fjalla um í stuttum kynningum. Við val á þessum erindum var
leitast við að velja áhugaverð viðfangsefni af sem fjölbreyttasta tæi til að gefa hugmynd um
rannsóknaviðfangsefni þeirra deilda sem að ráðstefnunni standa. Valið var erfitt vegna fjölda
verkefna sem standast fyllilega alþjóðlegan samanburð.
Fjöldi framlaga sem barst er nánast sá sami og fyrir tveimur árum en nú var hægt að auka
fjölda erinda þannig að flestir sem óskuðu eftir að halda erindi fá tækifæri til þess. Aðstaða
fyrir veggspjöld er mun betri í Öskju en var í Læknagarði og það er von okkar að þau fái
nú verðskuldaða athygli. Veggspjöldin verða uppi báða dagana og góður tími er ætlaður til
kynningar á þeim.
Ráðstefnunni er ætlað að vekja athygli, bæði innan Háskólans og utan, á þeirri miklu og
metnaðarfullu rannsóknastarfsemi sem fer fram innan þessara deilda Háskóla íslands og i
tengslum við þær. Einnig er mikilvægt að gefa ungum vísindamönnum sem þar starfa tækifæri til
að kynna rannsóknaverkefni sín. Hlutur nema í rannsóknatengdu framhaldsnámi er mjög stór og
hefur greinilega farið vaxandi síðustu tvö ár, þrátt fyrir takmarkaðar fjárveitingar. Viðfangsefnin
sem kynnt verða eru mjög fjölbreytileg og spanna allt frá grunnvísindum til heilsufarskannana.
Framlög einstakra rannsóknasviða eru mismikil eins og á fyrri ráðstefnum og mótast greinilega
nokkuð af fjölda nema í hinum ýmsu greinum í rannsóknatengdu framhaldsnámi.
Birna Þórðardóttir er nú framkvæmdastjóri ráðstefnunnar í fjórða sinn. Vísindanefnd þakkar
Birnu frábær störf.
Ég vona að ráðstefnugestir njóti vel þess sem fram fer þessa tvo ráðstefnudaga og kynni sér
það sem er í boði. Fulllrúar ungra og efnilegra vísindamanna verða verðlaunaðir sérstaklega á
ráðstefnunni. Verðlaununum er ætlað að vera hvati lil þeirra sem þau hljóta og annarra ungra
vísindamanna til enn frekari afreka í vísindum.
Jórunn Erla Eyfjörð
formaður Vísindanefndar læknadeildar,
tannlæknadeildar og lyfjafræðideildar
Fylgirit 50, 90. árg. Desember 2004
Aðsetur
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
Læknafélög: 564 4100
Læknablaðið: 564 4104
Bréfsími (fax): 564 4106
Læknablaðið á netinu
www. laeknabladid. is
Ritstjórn
Emil Sigurðsson
Hannes Petersen
Jóhannes Björnsson
Karl Andersen
Ragnheiður Inga Bjarnadóttir
Vilhjálmur Rafnsson ábm.
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@iis.is
Blaðamennska/umbrot
Pröstur Haraldsson
throstur@iis.is
Upplag þessa heftis 1.950
Áskrift 6.840,- m.vsk.
Lausasala 700,- m.vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að
birta og geyma efni blaðsins á raf-
rænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með nein-
um hætti, hvorki að hluta né í heild
án leyfis.
Prentun og bókband
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Síðumúla 16-18
108 Reykjavík
Pökkun
Plastpökkun ehf.
Skemmuvegi 8m
200 Kópavogi
ISSN: 0254-1394
Læknablaðio/
Fylgiiut 50 2004/90 3