Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2006, Page 46

Frjáls verslun - 01.04.2006, Page 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 Þ egar ég spurði íslenska stjórnendur hvort hægt væri að tala um íslenskan stjórnunarstíl ypptu flestir öxlum, þeir væru ekkert séríslenskir, hefðu lært erlendis, starfað með útlendingum - þeir gerðu bara eins og aðrir. Sumum fannst það bara „íslenskt stærilæti“ að halda að íslenskir stjórnendur skæru sig úr, aðrir bentu á að smæð íslensku fyrirtækjanna mótaði stjórnunarstílinn. Þegar ég spurði útlendinga var svarið einróma: „Já, það er til íslenskur stjórnunarstíll!“ Einn mesti munurinn á Íslendingum almennt og svo til dæmis Norðurlandabúum er hvað við erum fámálug og þeir málglaðir. Kannski hægt að tala hlutina í kaf - en það er samt ekki alveg út í hött að ræða málin. Ólíkur skilningur Íslendinga og útlendinga á íslenskum stjórnunarstíl er vísbending um að íslenskir stjórnendur eru ekki átakanlega meðvitaðir um hvernig aðrir sjá þá. Þessi skiln- ingsskortur er einnig vottur um grundvallar- veikleika íslenskra fyrirtækja: tjáskipti - bæði innan fyrirtækjanna og út á við. Hvað einkennir íslenska stjórnendur? En hvað er það þá sem útlendingum finnst ein- kenna íslenska stjórnendur? Nánast allir nefna fyrst af öllu hraða ákvarðanatöku. Síðan koma atriði eins og ungur aldur stjórnenda, vilji til að leysa málin, áhersla á frumkvæði og ábyrgð, óformleg framkoma og umgengnisvenjur, góð og alþjóðleg menntun stjórnenda, flatt skipulag fyrirtækja og að stjórnendur leituðu til þeirra sem best væru að sér um viðkomandi atriði án tillits til hvar í virðingarstig- anum þeir væru. Í augum útlendinga er frumkvöðlayfirbragð á íslensku fyrirtækj- unum, ekki yfirbragð þroskaðra fyrirtækja. Ýmsum fannst Íslend- ingar hafa á sér bandarískt yfirbragð. Aðrir nefndu að þeir líktust Finnum í því hve fámálir og einbeittir þeir væru. Viðtöl við erlenda stjórnendur og starfsmenn íslenskra fyrir- tækja sýna glöggt að þeir kunna almennt að meta íslenska andann, kunna að meta snerpuna og hressileikann, þó að þeim þyki eitt og annað umhugsunarvert í stjórnun íslenskra fyrirtækja. Stærsti aðdáenda- klúbbur íslensku fyrirtækjanna erlendis eru útlendu starfsmennirnir þeirra! Hröð ákvarðanataka: kostir og gallar Af hverju eru íslenskir stjórnendur svona fljótir að taka ákvarðanir? Eru Íslendingar kannski bara miklu klárari en annað fólk? Þó að íslenskir stjórnendur hafi stundum látið í veðri vaka í erlendum fjölmiðlum að þeir kynnu einfaldlega meira en aðrir og þeim gengi þess vegna svona ofurvel, þá eru íslenskar sérgáfur tæplega rétta skýringin hér. Íslenska útrásin: NOTA ÍSLENDINGAR „SPAGHETTI“-STÍLINN? Hvernig eru íslenskir stjórnendur í augum Norðurlandabúa? Hverju taka Norðurlandabúar helst eftir í fari íslenskra stjórnenda? Sigrún Davíðsdóttir blaðamaður hefur gert ítar- lega úttekt á málinu og rætt við 26 íslenska og erlenda stjórnendur, starfsmenn 9 íslenskra fyrirtækja á Norður- löndum og blaðamenn þriggja norrænna dagblaða. TEXTI: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON Í S L E N S K I R S T J Ó R N E N D U R Í A U G U M N O R Ð U R L A N D A B Ú A Greinin er byggð á skýrslu sem Sigrún Davíðsdóttir vann fyrir Útflutningsráð á vegum IMG ráð- gjafar, „Íslensk fyrirtæki á Norð- urlöndum: Aðferðir og orðspor.“ Skýrslan byggist á viðtölum við 26 íslenska og erlenda stjórn- endur og starfsmenn 9 íslenskra fyrirtækja og blaðamenn þriggja norrænna dagblaða. Skýrslan er bæði á íslensku og ensku og hana má nálgast á vefsíðu Útflutningsráðs og IMG.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.