Frjáls verslun - 01.04.2006, Page 63
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 63
smávöruverslanir, leigusölur hvers konar,
heildsölur, vildarklúbba og einnig vefversl-
unareiningu. MerkurPoint tengist algengum
bókhaldskerfum eins og Stólpa, DK, Navision
og fleirum.“ Því má svo bæta við að kerfið
getur tengst eftirlitsmyndavélakerfum en þess
er í síauknum mæli krafist í verslunum með
smávörur.
Þráðlausar merkingar eru framtíðin
Í nánustu framtíð sér Ólafur fram á að komnar
verði þráðlausar merkingar á allar vörur í
verslunum, svo kallað Rfid. Rafrænar merk-
ingar verði þá settar á vörurnar við framleiðslu
þeirra og þannig geti verslunareigandinn fylgst
með vörunni alveg frá því hún er framleidd og
þangað til hún er seld út úr versluninni.
„Þannig að þegar varan er á leiðinni frá
Kína til Íslands á verslunareigandinn að geta
fylgst með því hvar varan er staðsett hverju
sinni og hvort hún er yfir höfuð á leiðinni.“
Að sögn Ólafs munu sjálfsafgreiðslustöðvar
á vörum verða settar upp í verslunum á næst-
unni en MerkurPoint er með fyrsta þróunar-
umhverfið fyrir þráðlausar merkingar. „Þar
sem þessar sjálfsafgreiðslustöðvar verða mun
viðskiptavinurinn geta gengið inn í verslun og
tínt hluti í körfu eða jafnvel í vasana. Í stað
þess að þurfa síðan að skanna hverja vöru
fyrir sig mun viðskiptavinurinn geta gengið í
gegnum lesara sem skannar allar vörurnar í
einu um leið og hann gengur hjá,“ segir Ólafur
Sigurvinsson.
Það er allt hægt. Ólafur Sigurvinsson, 42 ára, lenti í alvarlegu slysi á sjó þegar hann var 19
ára og dreif sig upp úr því í tölvunarfræði. Núna er hann einn þriggja eigenda MerkurPoint.
FER SÍNAR EIGIN LEIÐIR
Ólafur var einn stofnenda
Islandia Internets árið 1995
og þá starfaði hann fyrir hug-
búnaðarfyrirtækið OZ bæði í
Boston og Stokkhólmi.
H U G B Ú N A Ð U R