Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 69
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 69
A
llir sem komnir voru til vits og ára á 7. áratugnum kannast
við nöfnin Profumo og Keeler - varnarmálaráðherrann í
íhaldsstjórn Harold Macmillans sem neyddist til að segja
af sér vegna sambandsins við Christine Keeler sem svaf
líka hjá varnarfulltrúa sovéska sendiráðsins.
Birtingarmynd þessa máls - og „swinging“ London 7. áratugarins
- var nektarmyndin af Keeler, sitjandi á stól danska hönnuðarins
Arne Jacobsen.
JOHN MAJOR - BACK TO THE BASICS Þegar John
Major reyndi að endurnýja hugmyndafræði Íhalds-
flokksins 1993 með frægri herferð um endurvakn-
ingu fjölskyldugildanna undir slagorðinu „back to
the basics“, fylgdi í kjölfarið runa mis-sóðalegra kyn-
lífshneyksla sem á engan hátt samræmdust fjölskyldugildum. Fyrir
skömmu kom svo í ljós að jafnvel Major sjálfur var ekki barnanna
bestur, átti í ástarsambandi við þingmanninn Edwinu Currie.
Nú er svo röðin komin að Verkamannaflokknum - síðast John
Prescott varaforsætisráðherra sem var gripinn með buxurnar á
hælunum, eða svo gott sem.
Hinum megin við sundið kemur í ljós við útför Francois Mitt-
erand forseta franska lýðveldisins að hann á uppkomna dóttur
utan hjónabands sem fjölmiðlar höfðu lengi vitað af en aldrei séð
ástæðu til að fjalla um.
Það er reyndar einföldun að segja að Bretar séu helteknir af
kynlífsmálum meðan Frakkar og aðrar meginlandsþjóðir séu
afslappaðri - oft má rekja bresku afsagnirnar til tilrauna til að ljúga
sig út úr málunum og málin eru ólíks eðlis þó kynlífsþátturinn tengi
þau. En hvernig stendur á þessum mun á því hvað er hægt og hvað
ekki? Það er tæplega neitt einhlítt svar en ýmsir þættir hafa áhrif.
Profumomálið var klárlega annað og meira en bara ástarævin-
týri - Keeler skrifaði síðar bók þar sem hún sagði sögu sína þar sem
ýmsir háttsettir menn komu við sögu og njósnir á báða bóga, bæði
Bretar og Rússar viðriðnir þá iðju. Málin, sem hafa komið síðan,
hafa verið öllu einfaldari.
DAVID MELLOR Íhaldsþingmaðurinn David Mellor
lenti í leitarljósi fjölmiðlanna 1992 þegar ung leik-
kona, Antonia de Sancha, steig fram á sjónarsviðið
og sagði frá ástarævintýrum sínum og Mellors sem
var harðgiftur. Þetta var eitt af fyrstu dæmunum
um það sem Bretar kalla „kiss and tell“ - að eiga í ástarævintýri og
segja svo frá öllu, fyrir þóknun. Leikkonan ku hafa fengið 30 þús-
und pund, ærinn peningur á þeim tíma.
Mellor gerði sömu mistökin og margir í hans sporum - harðneit-
aði öllu en varð síðan að éta það ofan í sig með skömm og fara frá.
Hann hefur ekki sést í stjórnmálum síðar en hefur stundað skrif og
annað tilfallandi.
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
BRESKIR STJÓRNMÁLAMENN:
MEÐ BUXURNAR
Á HÆLUNUM
Kynlífsskandalar koma reglulega upp í breskri pólitík.
Þetta er orðin nokkuð skrautleg saga. Nýjasta uppákoman
er vegna John Prescotts varaforsætisráðherra sem missti
allt nema titilinn og kaupið vegna framhjáhalds.
TEXTI: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o. fl.