Frjáls verslun - 01.04.2006, Page 79
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 79
Erna Bryndís Halldórsdóttir er
endurskoðandi og rekur þjón-
ustufyrirtæki fyrir erlend félög.
Hún og fyrrverandi skólasystur
hennar úr Verslunarskóla
Íslands hafa hist reglulega í
gegnum árin. Þær voru um
tíma í bridgeklúbbi en sumar
vildu breyta til og úr varð
gönguklúbbur. Hópurinn hitt-
ist heima hjá einni í hópnum
á mánudagskvöldum og sú
skipuleggur gönguleiðina í
það skiptið. Eftir göngutúrinn
er haldið á kaffihús.
„Við höldum kunnings-
skapnum með þessum hætti.
Við klæðum okkur eftir veðri,
fáum okkur frískt loft og kynn-
umst Reykjavík. Við erum
alltaf að finna nýjar leiðir og
skoðum borgina og nágrenni
hennar.“
Erna Bryndís er líka í
Rotary-klúbbi og er þar í
ferðanefnd. Hún fer á hverju
sumri með þeim hópi í þriggja
daga gönguferð úti á landi. Í
ár verður farið til Húsavíkur.
,,Hópurinn fer í langa göngu-
túra á daginn en á kvöldin
verða veisluhátíðir. Í þessum
ferðum reynir maður á sig
og félagsskapurinn er góður,
það er frábært fólk í Rotary.
Þessar ferðir eru ótrúlega
skemmtilegar.“
Að kynnast Reykjavík
Erna Bryndís Halldórsdóttir:
„Ég veiddi mikið silung sem
krakki og byrjaði í laxveiðinni
í kringum 1988,“ segir Björn
Leifsson, framkvæmdastjóri
World Class. „Veiði hefur
alltaf heillað mig. Þegar
fiskurinn tekur á fylgir þessu
spenna og ákveðið kikk. Lax-
veiðinni fylgir líka ákveðið
frelsi. Maður er úti í náttúr-
unni, ekki í símasambandi
og þessu fylgir slökun. Þegar
ég kemst í samband við lax-
inn þá kemst ekkert annað
að.“
Björn veiðir oftast í
Blöndu og í Miðfirði. Hann
hefur farið út fyrir landstein-
ana til að sinna þessari
ástríðu; hann fór í sjóbirt-
ingsveiði í Argentínu fyrir
einu ári og í sumar ætlar
hann að munda stöngina
við Yokanga-fljót í Rússlandi
sem að hans sögn er ein af
bestu stórlaxveiðiám í heimi.
„Við erum um tíu forfallnir
laxveiðimenn sem förum.“
Björn segist hirða megnið
af laxinum fyrri part sumars
en hann sleppir honum oft
síðsumars. „Laxinn er þá
orðinn lélegri. Hann er nær
óætur á haustin; orðin leginn
og horaður.“ Björn grillar oft-
ast laxinn sem hann hirðir og
hefur þá oftast ferskt salat
með.
Spenna, frelsi og slökun
Björn Leifsson:
Björn Leifsson.
Erna Bryndís Halldórsdóttir (í miðjunni).