Frjáls verslun - 01.04.2006, Page 80
80 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
Þeir eru áreiðanlega ekki margir
sem hafa komið á jafnmarga
staði á Íslandi og fréttamaður-
inn og flugmaðurinn Ómar Þ.
Ragnarsson. Þegar hann er beð-
inn um að nefna uppáhaldsstað-
ina sína á hálendinu raðar hann
nokkrum stöðum í röð eftir vægi
þeirra í sínum huga. „Þá ber að
taka tillit til heildaráhrifa þeirra
á þá sem þangað koma því feg-
urðin og tignin eru ekki aðeins
fólgin í útliti staðanna heldur
samhengi við land og sögu.“
Ómar nefnir í fyrsta lagi
Kverkfjöll. „Þetta er einstæðasti
staður á Íslandi og á engan
keppinaut í heiminum nema ef
vera skyldi Grímsvötn fyrsta árið
eftir að þar gýs. Þarna er hægt
að baða sig í volgri á í íshelli
undir Kverkjökli, síga niður 37
stiga heitan foss austan megin í
fjöllunum eða ganga í fjöruborði
lóns á toppnum.“
Ómar nefnir síðan Öskju og
bendir á að þar sé landslag lík-
ast því sem er á tunglinu. „Stað-
urinn minnir á það hvernig jörðin
varð til og þar þykir enn reimt
eftir að þýsku vísindamennirnir
Knebel og Rudloff hurfu þar spor-
laust árið 1907.“
Loks nefnir fréttamaðurinn
Jökulgil í Landmannalaugum og
Langasjó. „Jökulgil er ótrúlegt
völundarhús marglitra gilja og
Langisjór er fegursta fjallavatn
á Íslandi.“
Fallegustu staðirnir
á hálendi Íslands
Ómar Þ. Ragnarsson:
SUMARIÐ ER TÍMINN
Katrín Pétursdóttir:
Katrín Pétursdóttir, fram-
kvæmastjóri Lýsis, og fjöl-
skylda hennar eiga um 300
hektara jörð fyrir austan fjall.
Eiginmaður Katrínar er Jón
Guðlaugsson og eiga þau
eina dóttur. Hjónin fara austur
ásamt dóttur sinni yfirleitt um
hverja helgi á sumrin.
„Við erum með skóg-
rækt í kringum íbúðarhúsið
auk þess sem við stundum
heyskap til að heyja ofan í
hrossin okkar,“ segir Katrín,
en stórfjölskyldan á um 40
hross. „Hrossin eru næmar
skepnur og það er gaman
að fara í útreiðar í fallegu
umhverfi. Við ríðum stundum
meðfram Eystri-Rangá sem er
þarna rétt hjá og við stundum
laxveiði á sumrin.“ Þess má
geta að fjölskyldan fer þó
ekki á hestbaki til að veiða.
Katrín er vön að sjóða laxinn
og meðlætið er yfirleitt soðnar
kartöflur, ferskar agúrkur og
sítrónur.
„Íslensk náttúra er mjög
fjölbreytt og mismunandi eftir
veðri. Það er gaman að skoða
fuglalífið og gróðurinn. Þetta
er gott fyrir innipúka.“
Gott fyrir innipúka
Ómar Þ. Ragnarsson.
M
Y
N
D
:
F
R
IÐ
Þ
JÓ
F
U
R
H
E
L
G
A
S
O
N