Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
SEGLAGERÐIN ÆGIR:
Á hugi á hjólhýsum og húsbýlum vex stöðugt og ekkert lát er á sölu fellihýsa og tjaldvagna, enda vita Íslendingar
vel hvað landið hefur upp á að bjóða á góðu
ferðalagi. Í Seglagerðinni Ægi fást líka pallhýsi
og húsbílar svo ekki sé minnst á allan aukabún-
aðinn sem gerir lífið í þessum færanlegu sumar-
bústöðum að leik einum.
Seglagerðin Ægir var stofnuð árið 1913 en
Óli S. Barðdal eignaðist hana upp úr miðri síð-
ustu öld. Nú er Björgvin Barðdal, þriðji ættlið-
urinn, eigandi og framkvæmdastjóri. Starfsemi
fólst í byrjun í að þjóna sjávarútveginum en
það breyttist með aukinni tækni. Svo komu
Ægistjöldin til sögunnar og urðu ómissandi
á þjóðhátíðum og sem íverustaður vegavinnu-
manna um land allt í ótal sumur. Árið 1989
kom sérdeildin Tjaldvagnaland til sögunnar
þegar innflutningur tjaldvagna hófst, en þeir
voru bylting frá hefðbundnum tjöldum. Felli-
hýsin voru næsta stökk og hvort tveggja heldur
enn velli og salan vex þótt landinn sýni nú hjól-
hýsum og húsbílum feikilegan áhuga, enda er
þar kominn „sumarbústaður“ á hjólum.
Fyrst tjaldvagn og í lokin húsbíll Björgvin
Barðdal segir að í landinu séu trúlega um 12
þúsund tjaldvagnar, fellihýsi og hjólhýsi þótt
við komumst ekki með tærnar þar sem Hol-
lendingar og Þjóðverjar hafa hælana en mikið
af vörum Seglagerðarinnar kemur frá þessum
löndum. Margir fá sér fyrst tjaldvagn, síðan
fellihýsi og loks hjólhýsi og huga svo að hús-
bílakaupum, að sögn Björgvins. Allt fer þetta
þó eftir því hvað hverjum hentar.
Innréttingar í fellihýsum, hjólhýsum og
húsbílum jafnast á við fínustu sumarbústaði,
aðeins flatarmálið er minna. Einangrun og upp-
hitun er mjög góð og ekkert að vanbúnaði að
nýta þessa bústaði á hjólum allt árið því að nota-
legt er inni þótt úti sé frost. Við þetta hefur
ferðatímabilið lengst til muna og margir ferðast
nú allan ársins hring, sama hvernig viðrar.
Stór hluti fellihýsa- og hjólhýsaeigenda ekur
með þau um landið þótt aðrir láti þau standa
á sama stað sumarlangt. Aðstaða fer batnandi
og margir bændur og athafnamenn hafa gert
sér ljóst að með því að bjóða fólki upp á fallega
náttúru, rafmagnstengingu og kannski sund-
laug á áningarstöðum hafa þeir með litlum til-
kostnaði nánast komið sér upp „hótelaðstöðu“
sem æskilegt væri að sveitarfélög gerðu líka.
Seglagerðin Ægir leggur mikið upp úr að
bjóða viðskiptavinum allt sem snýr að ferða-
lögum og ferðavögnum. Hún rekur stærsta
þjónustuverkstæði landsins fyrir ferðavagna
auk verslunar með alla nauðsynlega fylgihluti.
Einnig er Seglagerðin með eitt stærsta sauma-
verkstæði landsins þar sem gert er við og
saumuð tjöld, skyggni, veislutjöld og margt
fleira. Seglagerðin Ægir hefur alla tíð þjónað
Íslendingum vel þótt starfsemin hafi færst frá
sjávarútvegi og yfir í að gera mönnum lífið létt
og skemmtilegt með Ægis-tjöldum og hvers
konar „sumardvalarstöðum á hjólum“.
Seglagerðin selur allt frá yfir-
breiðslum upp í húsbíla
Aðalbækistöðvar Seglagerðarinnar
Ægis eru að Eyjaslóð 5. Þar er
Tjaldvagnaland, Þjónustuland,
Tjaldaleiga og saumastofa.
KYNNING
Björgvin Barðdal, eigandi
og framkvæmdastjóri
Seglagerðarinnar Ægis,
lætur fara vel um sig í einum
„sumardvalarstaðnum“.
Fellihýsin eru sívinsæl.
Húsbílarnir eru ofarlega á óskalista allra.
Innréttingarnar eru glæsilegar.