Frjáls verslun - 01.04.2006, Qupperneq 108
108 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
K
Y
N
N
IN
G
SUMARIÐ ER TÍMINN
SECURITAS:
Sumarið, tími sumarleyfanna, er komið. Fólk skreppur að heiman og hefur þá oft
áhyggjur af heimilinu og óboðnum
gestum sem þangað kunna að slæðast.
Það á þó ekki við um þá sem notfæra
sér Heimavörn Securitas. Þeir fara
áhyggjulausir að heiman, Heimavörn
Securitas gætir eignanna í fjarveru
þeirra. Svo er það sumarbústaðurinn
þar sem frábært er að nýta sér Sumar-
húsavörn Securitas sem lætur vita ef
eitthvað ber út af.
Trausti Harðarson, forstöðumaður Einstaklingssviðs Securitas, segir
að fyrirtækið bjóði öryggiskerfi, sérstaklega ætlað sumarbústöðum. Það
sé einfalt í uppsetningu og fólk geti sett það upp sjálft. Kerfið kemur í
handhægum pakkningum, með íslenskum leiðbeiningum og tilbúið til
uppsetningar. Kerfið er upprunnið í Noregi, sérhannað fyrir sumarhús,
en hefur verið lagað að íslenskum aðstæðum. Sumarhúsakerfið er í eigu
Securitas og enginn stofnkostnaður fylgir því, aðeins eru greiddar 2.980
kr. í leigu á mánuði.
Sumarbústaðaeigendur fara oft í eftirlitsferðir í bústaðinn til að kanna
hvort ekki sé allt í lagi og með auknum bensínkostnaði eru þær orðnar
kostnaðarsamar. Hundrað kílómetra akstur kostar sjaldan undir 1200
kr. á sparneytnum bíl, og er miklu meira aki menn á eyðslusömum
bílum. Menn eru því fljótir að spara fyrir mánaðargjaldi sumarhúsavarn-
arinnar sé eftirlitsferðum fækkað.
Kerfið vakir yfir bústaðnum „Sumarhúsakerfið lætur vita ef eitt-
hvað kemur fyrir í bústaðnum. Reykskynjari segir til ef eldur kemur
upp, hreyfiskynjari lætur vita af óeðlilegri hreyfingu, t.d. óboðnum
gesti. Öryggiskerfið samanstendur af reykskynjara, hurða/glugganema,
hreyfiskynjara, lyklaborði, stjórnstöð, leiðbeiningum á íslensku um upp-
setningu og notkun og límmiðum á glugga eða útidyr sem gefa til kynna
að Securitas vakti bústaðinn,“ segir Trausti. „Kerfið tengist sjálfvirkt
stjórnstöð Securitas hjá Neyðarlínunni 112 um leið og það hefur verið
sett upp og boð berast ef eitthvað óeðlilegt gerist.
Heimilið öruggt Heimavörn Securitas er vinsælasta vara Securtitas og
henni fylgir mikið öryggi eins og þeir þekkja sem reynt hafa. Hún vaktar
heimilið þegar heimilisfólk er sofandi eða fjarverandi. Vörnin sendir frá
sér boð ef eitthvað gerist, t.d. um vatnsleka, eld, óeðlilega hreyfingu og
opna glugga. Með heimavörn Securitas getur húseigandi sofið rólegur
hvort heldur heima eða heiman. Hann veit að hús hans er vaktað og
vörnin tengd stjórnstöð Securitas hjá Neyðarlínunni 112. Algengt verð
er 4.900 kr. á mánuði. Heimavörnin er sérsniðin að hverju heimili og
henni fylgir enginn stofnkostnaður.
Securitas vaktar heimili
og sumarbústað
Securitas er með starfs-
stöðvar í helstu sumar-
húsabyggðum landsins
og þaðan er útkallsþjón-
ustu sinnt þegar boð
berast frá sumarbústaða-
vörninni til stjórnstöðvar
Securitas hjá Neyðar-
línunni 112.
Trausti Harðarson
er forstöðumaður
Einstaklingssviðs
hjá Securitas.