Frjáls verslun - 01.04.2006, Page 111
„Félagsskapurinn og maturinn eru mest heill-
andi,“ segir Jóhannes Felixson bakari, betur
þekktur sem Jói Fel, þegar hann er spurður
út í laxveiðina. Um fimmtán ár eru liðin
síðan Jói Fel fór að munda stöngina að ráði
og reynir hann að komast í Miðfjarðará á
hverju ári auk þess sem hann veiðir á fleiri
stöðum. Miðfjarðará er í uppáhaldi. „Hún er
stór og falleg og þar eru margir góðir veiði-
staðir.“ Jói Fel segist þó ekki vera mjög
heppinn í veiðimennskunni en bendir á að
það sé ekki endilega magnið sem skiptir
máli heldur gæðin.
Jói Fel er annálaður sælkeri og í hans
huga er laxinn grillmatur. „Ég leita eftir að
borða hann ferskan; ég elda hann lítið og
við háan hita þannig að ferskleikinn hald-
ist. Ég krydda laxinn oft að austurlenskum
hætti; laxinn er bragðmikill og þolir mikið
krydd. Ég nota til dæmis hvítlauk og engi-
fer og góða austurlenska sósu eins og
teriyaki og sweet chili. Þá er ég oftast með
hrísgrjón, gott salat og grillaðar kartöflur í
skífum þannig að þær verði stökkar.“
Bestur ferskur
Jóhannes Felixsson:
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra var um sex ára
þegar hún eignaðist fyrsta hestinn
sem hét Úa. Hún hefur átt hesta
allar götur síðan en vegna anna í
tengslum við starf menntamálaráð-
herrans hafa ferðirnar upp í hesthús
verið stopular í vetur.
Þegar Þorgerður Katrín er spurð
hvað henni finnist mest heillandi
við hestamennskuna segir hún:
,,Tengslin við náttúruna og hesta-
ferðir sem farnar eru sérstaklega á
sumrin. Þær eru ólýsanlegar og ég
sé landið frá öðru sjónarhorni.“ Hún
nefnir líka samspil mannsins, dýrsins
og náttúrunnar. „Dýrin eru misjafnir
einstaklingar.“
Þorgerður Katrín segist vera dug-
leg að fara í fimm til tíu daga hesta-
ferðir. „Ég hef til dæmis ferðast um
Suðurland og þaðan upp á hálendið.
Þá fór ég um Vesturland í fyrrasumar
og fyrir nokkrum árum fór ég um
Húnavatnssýslu, upp á hálendið og
endaði á Hópi. Þetta eru bestu fríin
enda er þetta mjög gefandi.“
Maður, dýr og náttúra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir:
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6 111
Jóhannes Felixsson.