Frjáls verslun - 01.04.2006, Blaðsíða 122
122 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 6
KVIKMYNDIR
TEXTI: HILMAR KARLSSON
M
örg ár eru síðan Christopher Reeve hlaut heimsfrægð
fyrir að leika Clark Kent, öðru nafni Superman, í fjórum
kvikmyndum. Hafa síðan verið gerðar tvær vinsælar sjón-
varpsseríur sem byggjast á ævintýrum „Stálmannsins“,
auk þess að haldið er áfram að gera teiknimyndir fyrir sjónvarp.
Superman lifir því góðu lífi þó að kvikmyndiðnaðurinn hafi hvílt
hann um hríð.
Í öllu framhaldsmynda- og endurgerðarflóði sumarsins má finna
nýja kvikmynd um Superman og er hún af stærri gerðinni og telst
til þeirra kvikmynda sem spáð er miklum vinsældum. Superman
Returns nefnist myndin og hefur hún lengi verið í smíðum og óopin-
berar tölur segja að hún hafi kostað 185 milljónir dollara.
Í hlutverki Supermans að þessu sinni er óþekktur leikari,
Brandon Roth, og nú er spurningin hvort hann standi sig jafnvel
og Christopher heitinn Reeve, en hann stóð í sömu sporum og
Roth árið 1978, óþekktur leikari sem þurfti að sanna sig. Leikstjóri
myndarinnar er Bryan Singer, sem á að baki fyrstu tvær myndirnar
í X-Men seríunni og kaus frekar að leikstýra Superman Returns
en X-Men: The Last Stand, sem gerð var um sama leyti. Þátttaka
Singers gerir það að verkum að væntingar eru miklar enda maður-
inn mjög fær á sínu sviði og á, auk X-Men myndanna, að baki hina
mögnuðu The Usual Suspect.
SUPERMAN SNÝR AFTUR
Síðasta Superman myndin var Superman IV: The Quest For
Peace (1987), sem þótti afspyrnu léleg og gerði út af við mynda-
flokkinn með Christopher Reeve í hlutverki ofurhetjunnar. Það er
einnig langt frá því Superman hefur birst jarðarbúum í Superman
Returns. Þegar myndin hefst hefur ekkert spurst til hetjunnar í
nokkur ár og er talið að hann sé horfinn af eilífu. Svo er nú ekki,
heldur hefur hann verið að sinna persónulegum málum á heima-
plánetu sinni, Krypton. Þegar hann kemur til jarðar kemst hann að
því, sér til mikillar raunar, að ástin hans, Lois Lane hefur ekki séð
sér annað fært en að lifa lífinu áfram án Supermans, eða svo virðist
vera í fyrstu. Einnig reynist Superman erfitt að feta sig í þjóðfélagi
sem hefur komist að raun um að það getur verið án hans. Gamall
óvinur, Lex Luther, er þó samur við sig og vill sem fyrr heimsyfirráð
og kannski má segja að það sé honum að þakka að Superman öðlist
í lokin sinn fyrri virðingarsess.
Singer vildi óþekktan leikara
Brandon Roth hefur af og til sést í gestahlutverkum í þekktum
sjónvarpsseríum, meðal annars í Will & Grace og Cold Case, en
aðeins leikið í einni kvikmynd, Karla, sem fór beint á myndbanda-
markaðinn í fyrra. Roth, er 26 ára gamall, fæddur 9. október 1979,
í Des Moines, Iowa.
Í hlutverki Supermans að þessu sinni er óþekktur leikari, Brandon Roth.