Frjáls verslun - 01.04.2006, Side 123
BÍÓMOLAR
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6 123
Nokkur ár eru liðin síðan
áætlanir voru fyrst uppi um að
endurlífga Superman. Þá átti
Tim Burton að leikstýra mynd-
inni með Nicolas Cage í hlut-
verki Clark Kents. Þegar ekkert
varð úr því voru leikstjórarnir
Wolfgang Petersen og Brett
Radner nefndir og á langri leið
voru nefndir í hlutverkið Josh
Hartnett, Ashton Kutcher, Jude
Law, James Caviezel og Tim
Walling, sem lék Superman í
Smallville sjónvarpsseríunni.
Þegar svo að lokum tókst að
fá Bryan Singer til að leikstýra myndinni setti hann það
skilyrði að óþekktur leikari yrði valinn í hlutverkið eins
og forðum þegar Christopher Reeve var valinn.Var fallist
á það og hófst mikil leit að verðugum arftaka Reeves og
Roth varð fyrir valinu, ekki síst vegna útlitsins, en hann
fellur vel að þeirri ímynd, sem Christopher Reeve skóp
á sínum tíma. Mótleikarar Brandon Roths eru öllu þekkt-
ari. Kevin Spacey birtist á hvíta tjaldinu eftir langt hlé og
leikur illmennið Lex Luther. Kate Boxworth bætist í hóp
fagurra leikkvenna sem leikið hafa Lois Lane, en skemmst
er að minnast þess að aðþrengda eiginkonan Teri Hatcher
lék Lois Lane í sjónvarpsseríunni Lois & Clark: The New
Adventures of Superman. Aðrir leikarar eru James Mars-
den, Frank Langella og Eva Marie Saint.
Löng saga að baki
Það hefur mikið vatn runnið til sjávar frá því að teiknar-
arnir Jerry Siegel og Joe Shuster birtu fyrstu teiknimynda-
seríuna um Superman árið 1938. Vinsældir hennar urðu til
þess að flóð teiknimyndasería um ofurhetjur hvers konar
fylgdu í kjölfarið.
Margar kvikmyndir hafa verið gerðar um Superman
og enn fleiri sjónvarpsmyndir. Sögu Supermans í kvik-
myndum má rekja allt til ársins 1941, þá var gerð stutt
teiknimynd. Fyrstu leiknu útgáfurnar eru gerðar árið
1948, það voru fimmtán stuttar myndir. Sá sem þá fór
með hlutverk Supermans hét Kirk Alyn og má sjá honum
bregða fyrir í litlu hlutverki í Superman frá árinu 1978. The
Adventures of Superman var fyrsta sjónvarpsserían og hóf
hún göngu sína 1952. George Reeves lék Superman í þess-
ari seríu. Eftir að seríunni lauk átti Reeves erfitt með að fá
hlutverk og framdi hann sjálfsmorð árið 1959.
Superman Returns verður frumsýnd í Bandaríkjunum
í júní og hér á landi er áætlað að frumsýna hana í byrjun
júlí. Mikinn áhorfendafjölda þarf til að ná upp í kostnað-
inn og þar veltur mikið á getu Brandon Roths að feta í
fótspor Christopher Reeves, sem í augum allra sannra
Supermanaðdáenda er hinn eini sanni Superman.
Unbreakable, Signs og The
Village, séu ekki fínar myndir,
en ekki eins góðar og The Sixth
Sense. Shyamalan er um það
bil að skila frá sér nýrri mynd,
Lady in the Water, sem eins
og fyrri myndir hans er á dular-
fullum nótum og fjallar um tvær
manneskjur sem fela sig fyrir
raunveruleikanum. Í aðalhlut-
verkum eru Paul Giamatti, sem
sló í gegn í Sideways og Bryce
Dallas Howard, dóttir leikstjór-
ans Ron Howards.
Loforðið
Það efast enginn um að í fram-
tíðinni eiga Kínverjar eftir að
verða stórveldi í kvikmyndaiðn-
aðinum. Þeir eru með hverju
árinu að færa sig ofar og ofar
á lista kvikmyndaþjóða og eiga
nú yfir að ráða mjög hæfum
leikstjórum sem hafa látið ljós
sitt skína á Vesturlöndum. Einn
þeirra er Kaige Chen sem vakti
fyrst athygli með Farewell My
Concubine (1993). Nýjasta
mynd hans Loforðið (Wo ji á
frummálinu) er dýrasta kvik-
mynd sem Kínverjar hafa gert
hingað til og var hún vinsælasta
kvikmynd í Kína í fyrra. Chen
sækir efniviðinn í þjóðsögur úr
fortíðinni um hefðarkonu sem
er ástfangin af þræli. Loforðið
er íburðarmikil, epísk kvikmynd
og er um þessar mundir verið
að taka hana til sýninga í hinum
vestræna heimi. Í aðalhlut-
verkum eru Cecilia Cheung og
Dong-Ku Jang.
Húsið við vatnið
Sumarið er ekki sá tími ársins
í Hollywood að vænlegt þyki
að setja dularfulla rómantík á
markaðinn. Undantekningar
eru þó til og er The Lake
House, ein slík. Það kemur að
vísu ekki til af góðu að hún er
frumsýnd um miðjan júní. Upp-
runalega átti að frumsýna hana
í byrjun febrúar, en seinkun
gerði það að verkum að fresta
þurfti frumsýningu. Í The Lake
House segir frá einmana lækni
og örvæntingarfullum arkitekt,
sem búa í húsi við vatnið með
tveggja ára millibili. Í gegnum
póstkassa við húsið geta
þau skipst á bréfum og verða
ástfangin í gegnum bréfaskrift-
irnar. Sandra Bullock og Keanu
Reeves eru í aðalhlutverkum.
The Lake House er endur-
gerð kóreönsku myndarinnar
Siworae (2000), Alejandro
Agresti leikstýrir, en hann er
argentískur og er þetta fyrsta
kvikmynd hans í Hollywood.
The Lake House verður tekinn
til sýninga hér á landi 28. júní.
Konan í vatninu
Enginn efast um snilli M. Night
Shyamalan sem kvikmyndagerð-
armanns. Hann hefur þó þurft
að búa við það eins og fleiri
snillingar að hafa með sinni
fyrstu kvikmynd skilað meist-
araverkinu, The Sixth Sense,
og hefur átt í erfiðleikum með
að fylgja henni eftir. Ekki
það að aðrar myndir hans,
Kevin Spacey fetar í fót-
spor Gene Hackmans
og bregður sér í hlut-
verk Lex Luthers, erki-
óvinar Supermans.
Cecilia Cheung
í hlutverki hefð-
arkonunnar í
Loforðinu.