Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Page 16
126 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR síns til lýðveldiskosnínganna. Þótt menn væru ólíkir að skoðun og skaplyndi, og lifðu við mismunandi kjör, hafði hver og einn talið það helga og ófrávíkjanlega skyldu sína að greiða lýðveldinu at- kvæði sitt. Þar í sveitinni var fyrirhuguð mikil reið á Þíngvöll lýð- veldisdaginn. Og þegar ég spurði gamla prestinn hvort hann mundi ríða með þeim svaraði hann því til að af því gæti ekki orðið hversu feginn sem hann vildi. Hann kvaðst eiga skyldum að gegna heima í sókn sinni. Síðan sagði liann mér hvernig stundaskrá hann hefði gert sér lýðveldisdaginn. Ef ég man rétt ætlaði hann að hefja dag- inn með því að semja skipulagsskrá framfarasjóðs fyrir sveitina sína. Hann hafði tjáð nágrönnum sínum að kirkja hjá sér mundi verða opin þennan dag, og stundu fyrir hádegi ætlaði hann að fram- bera þar þakkargjörð fyrir að guðinn skyldi af himni sínuin hafa litið niður til þessarar litlu þjóðar og reist hana upp. Síðari hluta dagsins ætlaði hann að vitja nokkurra sóknarbarna sinna, sem átt höfðu sinn þátt í stofnun íslenska lýðveldisins, en lítinn kost hins að halda fagnaðarhátíðina. Ég man hann sagðist ætla að vitja níræðrar konu og blinds manns, sem bæði höfðu kosið lýðveldið; því saga þjóðarinnar lifði einnig í brjóstum þeirra örvasa og blindu, hinna óþektu, gleymdu og týndu manna í krókum og kimum þjóð- félagsins; og meðan hinir hraustu og glöðu og frægu fögnuðu í birtunni ætlaði þessi gamli prestur að gánga á fund þeirra sem bjuggu í myrkrinu og fagna með þeim. * Það er erfitt að trúa því að nokkur sá maður sem heyrði litlu klukkuna í Þíngvallakirkju hríngja 17. júní 1944 geti hugsað sér að afhenda sjálfstæði landsins aftur nú, tæpum tveim árum eftir að við höfum fullheimt það á ný. Jafnótrúlegt virðist að þjóðin geti nú, á öðru ári lýðveldisins, skipað sér í flokka um þetta mál, annarsveg- ar þeir sem vilja vera Íslendíngar, hinsvegar þeir sem vilja afhenda landið. Ég get ekki skilið að sá maður vilji heita Íslendíngur sem vill gera ísland að hernaðarstöð útlends ríkis. Þann dag sem ísland afhendist útlendu ríki sem herstöð er það ekki leingur ísland og vér ekki leingur Islendingar. Þann dag erum vér orðnir aðeins in- ventar útlends stríðsvirkis. Allir ærlegir Íslendíngar mundu heldur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.