Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Síða 86

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Síða 86
196 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR barni í fanginu. Þau höfðu enga vinnustúlku fyrir sparsemi sakir, en Monika yngri systir Onnu var hjá þeim eitthvað um klukkutíma á morgnana og eitthvað svipað á kvöldin til þess að hjálpa til. Nú var Monika farin heim fyrir löngu. Klukkuna vantaði fjórðapart í níu. Litli-Chandler hafði komið of seint í teið og hafði auk þess gleymt að koma heim með kaffipakka úr Beuleysbúð. Auðvitað var hún í slæmu skapi og svaraði honum út úr. Hún sagði, að hún mundi komast af telaus, en þegar leið að lokunartíma ákvað hún að fara sjálf eftir hálfri mörk af tei og tveim pundum af sykri. Hún lagði sofandi barnið gætilega í faðm hans og sagði: „Hérna. Yektu hann ekki.“ Lampakríli með hvítum postulínshjálmi stóð á borðinu og birtan frá honum féll á ljósmynd í ramma sem var étinn á hornunum. Það var mynd af Önnu. Litli-Chandler horfði á hana og dvaldi við þunnar lokaðar varirnar. Hún var í ljósbláu sumarblússunni, sem hann hafði fært henni að gjöf einn laugardag. Hún hafði kostað hann tíu shillinga og ellefu pence; en hvílíka kveljandi taugaæsingu hafði hún ekki kostað hann. Hvað hann hafði þjáðst þann dag, meðan hann beið við dyrnar þangað til búðin var orðin tóm, með- an hann stóð við borðið og reyndi að sýnast rólegur, en afgreiðslu- stúlkan hrúgaði kvenblússum fyrir framan hann, meðan bann var að borga við borðið hjá peningakassanum og gleymdi að taka við skiptimyntinni, meðan hann gekk inn aftur við kall gjaldkerans og loks meðan hann gekk út úr búðinni og reyndi að hylja feimnisroða sinn með því að athuga böggulinn hvort hann væri vel bundinn eða ekki. Þegar hann kom heim með blússuna, kyssti Anna hann og sagði hún væri mjög falleg og eftir nýjustu tízku; en þegar hún heyrði verðið kastaði hún blússunni á borðið og sagði að það væru helber svik að setja tíu shillinga og ellefu pence á hana. í fyrstu vildi hún skila henni aftur, en þegar hún hafði mátað hana var hún stórhrifinn af henni, einkum sniðinu á ermunum, kyssti hann og sagði hann væri ákaflega vænn að hugsa um hana. Hm! .... Hann horfði kuldalega í augun á myndinni og þau horfðu kulda- lega á móti. Víst voru þau snotur og andlitið slíkt hið sama. En, honum fannst eitthvað lítilmótlegt við það. Hversvegna var það
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.