Tímarit Máls og menningar - 01.07.1946, Blaðsíða 94
204
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
arnir voru ekki opnaðir fyrr en við komum til Danzig. Við fengum
ekkert vatn, engan mat, og loftleysið var kveljandi í vögnunum. Við
mjökuðumst lafhægt áfram með stönzum og viðtöfum á ótal stöð-
um. Þegar við komum til Stutthofs 5. okt. vorum við nær dauða en
lífi. Daginn eftir kom það í ljós, að við höfðum létzt um 10 kg. til
jafnaðar á leiðinni.
Þegar lokið var við að reka okkur inn í fangabúðirnar með
skömmum, barsmíðum og spörkum, var okkur skipað í raðir til þess
að hlýða á „boðskap“. Og síðan hélt yfirfangavörðurinn, sem var
stormsveitarforingi, ræðu yfir okkur. í þessari ræðu sagði hann
meðal annars:
Við eruð nú komin í fangabúðir ríkisins. Vitið þið hvað það
þýðir? Það vitið þið vafalaust ekki. En ég skal segja ykkur það.
Það þýðir, að þið eruð ekki komin í uppeldisfangabúðir, heldur í
upprætingarfangabúðir!
Hann kallaði á einn af félögum okkar, sem kunni þýzku, og
spurði hann um leið og hann benti á reykháf, sem gnæfði upp úr
fangabúðunum:
— Hvaða reykháfur heldurðu að þetta sé?
— Það veit ég ekki, svaraði félagi okkar. Það er ef til vill þvotta-
hús.
— Þvottahús! öskraði Meyer. Nei, það er líkbrennslustofa, og
frá þessum fangabúðum eru aðeins einar útgöngudyr og þær eru
gegnum reykháfinn. Og um leið veifaði liann höndunum eins og
þegar ungi er að reyna að fljúga í fyrsta skipti. Hann ætlaði að
sýna okkur með því, hvernig við kæmumst út um reykháfinn, út
í frelsið.
Meyer stormsveitarforingi hafði rétt fyrir sér. Stutthof var tor-
tímingarfangabúðir. Þeim var þegar í nóvember árið 1939 komið
á fót sem slíkum af Forster, héraðsstjóranum í Danzig. Stutthof er
við ósa Vizlufljóts um 30 km. frá Danzig, á svæði, þar sem allt vatn
er fúlt. Fyrir stríðið höfðu menn ótta og andstyggð á þessu svæði
og töldu það hættulegt vegna taugaveikissýkla.
Ég segi hér frá nokkrum staðreyndum, sem bregða birtu yfír
það, sem gerist í tortímingarfangabúðum. Það ætti að gefa lítilfjör-
lega til kynna, hvað Stutthof var. Stutthof var nefnilega sérkenni-