Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 11

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 11
Að vísindastarji hjá Sameinuðu þjóðunum ekki aðeins sívaxandi gagnrýni í mörgum af þekktustu dagblöðum landsins, heldur og manna á meðal — jafnt þeirra er höfðu kosið Johnson — manna, sem ekki trúðu á árangur né tilgang þess að heyja strið fyrir „lýðræðið" í frumskógum Suðaustur-Asíu, þaðan sem Frakkar urðu loks að hörfa eftir að miklu blóði hafði verið úthellt. Raunar virðist Johnson hafa tekið upp þá stefnu, sem fjöldi manna óttaðist að Goldwater myndi fylgja, ef hann kæmist í Hvíta húsið. Fregnir berast af því að vakin sé sterk lireyfing í Bandaríkjunum, einkum meðal háskólamanna, gegn stríðinu í Víetnam, svo-nefnd Teach-in-hreyfing. Geturðu sagt mér nokkuð af henni? „Teach-in-hreyfingin“ hafði tæplega hafið göngu sína er ég fór frá New York upp úr páskum, og er ég því fremur lélegur heimildarmaður um hana. En hún er greinilega enn eitt tákn þess, að miljónir Bandaríkjamanna eru mjög óánægðir með Víetnam-pólitík Johnsons og hernaðarráðunauta hans. Og hvernig lízt þér nú á þróunina hér heima? Mér lízt vel á þróunina að því leyti að yfir landinu ríkir hressandi fram- kvæmdablær, og það er miklu meira að gera en íslenzkar hendur fá áorkað, þó að vinnudagur margra sé langur. Skýring þessa fyrirbæris er óvenju mikil gjaldeyrisöflun (auk gjaldeyrislána) hin síðari ár, en grundvöllur hennar er aðallega ný fiskveiðitækni, er sjómönnum okkar hefur tekizt að nýta vel. Þetta mætti nefna lán þjóðarinnar, gjafmildi náttúrunnar, eða slembilukku er við mættum minnast í auðmýkt. Enda væri hér hart í ári og kjör almenn- ings ekki „mannsæmandi“, ef sömu veiðitæki og veiðiaðferðir væru notaðar og fyrir 1940. En veiðiskapur, er byggist eingöngu á því að veiða án þess að þurfa að hirða um ræktunarhlið fisksins, er í eðli sínu skyldur gullgreftri, og því þarf það kannski ekki að vera undrunarefni þó að á landi voru gæti nokkurs gullgrafarabragar í ýmsum athöfnum. Er þetta raunar ekki nýtt fyrir- bæri, en alltaf sker það mest í augun, þegar menn hafa dvalizt langdvölum erlendis. Fyrir þrem árum ritaðir þú grein hér í tímaritið um raunvísindi og íslenzk- an þjóðarbúskap. Hejurðu hugsað mikið um þessi ejni erlendis? Starf mitt hjá S. Þ. fjallaði beint og óbeint einkum um auðlindir ýmissa landssvæða og sem hagfelldasta nýtingu þeirra. Því velti ég nær daglega fyrir mér viðfangsefnum skyldum þeim er ég reifaði í nefndri tímaritsgrein. 121
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.