Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 49
Thomas Markey
Hárrúllur á steinöld
Nokkrar athugasemdir um ísland og íslendinga
Fyrir mörgum sumrum fóru liinn frá-
bæri dr. Samuel Johnson og hinn
ekki síður frábæri förunautur hans,
James Boswell, í meiriháttar ferða-
lag um Suðureyjar og Skotland norð-
anvert. Skoðanir hins fræga doktors
á Skotum og athugasemdir hans um
þá skráði Boswell af kostgæfni og
vandvirkni. Birtist skoðanir mínar á
Islandi og Islendingum á tungutaki
sem skortir hæði þá dýpt og ná-
kvæmni sem finna má í frásögn Bos-
wells, stafar það annað tveggja af
því að ég hafði hvorki jafn framúr-
skarandi leiðsögumann og Boswell
hafði né jafn nákvæman og sannorð-
an sögumann og Johnson hafði.
Ég kom til íslands í fyrsta skipti
sumarið 1964. Um þær mundir leit-
aði ég í þrjá mánuði að hinni raun-
verulegu Sölku Völku jafnframt því
sem ég skrifaði meistararitgerð um
samnefnda skáldsögu. Síðasta mán-
uðinn sem ég dvaldist á íslandi af-
henti menntamálaráðuneytið mér
10.000 kr., en verðbólgan á íslandi
sá fyrir því að sú upphæð entist mér
fyrir einu kvöldi á Nausti, þremur
flugfarmiðum, fimm hókum og nef-
tóbaksdós; voru þá fjárhagsástæður
mínar þær sömu og áður. En hefði
ég ekki fengið þennan styrk, hefði
mér samt aldrei tekizt að ferðast til
Bolungarvíkur og finna þannig um-
hverfi skáldsögunnar, en því miður
enga Sölku. Meðan ég var að leita
að Sölku, fjármunum og einhverri
þekkingu á hinu órannsakanlega sál-
arlífi íslendinga hafði ég margt
skringilegt fyrir stafni. Ég var osta-
gerðarmaður í mjólkurbúinu á Húsa-
vík, affermdi Esju á Seyðisfirði, var
pæklafræðingur á Eskifirði, stund-
aði steypuvinnu í Bolungarvík og sat
stundum saman á Háskólabókasafn-
inu. í sumar kom ég enn til íslands,
en ég er hættur að leita að Sölku og
hélt í staðinn áfrairr að leita að
kjarna hinnar íslenzku sálar. Ekki
veit ég hvort allt þetta gerir mér
kleift að kveða upp nákvæma og/eða
snjalla dóma. Hins vegar hafa dómar
um gildi yfirleitt aðeins gildi fyrir
þann sem kveður þá upp. Með það í
huga herði ég mig upp í það verk-
efni að tína til nokkrar gagnrýnar
athugasemdir, sem ég vona að verði
hvorki einskis virtar né teknar of al-
varlega.
Mér brá í fyrsta skipti í brún á
159