Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Side 72

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Side 72
Tímarit Máls og menningar frumröðin er á enda (ellefta tilbrigð- ið). Því sem Schönberg reynir að forð- ast, heldur Eisler til streitu. Meðferð hans á stefinu, sú aðferð að sýna tón- sambönd, er láta kunnuglega í eyr- um, í óvæntu samstæði, sá háttur að styrkja ýmist tónalan grundvöll eða losa óvænt um hann og endurtúlka sí- fellt tónfallalögmálin — allt eru þetta einkenni á tónsmíðaaðferð hans í mörgum verkum á þessum árum. Með „Þýzku sinfóníunni“ skóp Eisler áhrifamikið listaverk um and- fasísku mótspyrnuhreyfinguna. Flutn- ingstími verksins er um sjötíu mínút- ur, og það skiptist í átta söngsveitar- þætti auk þriggja, sem eru eingöngu fyrir hljóðfæri. Megindrættir textans, sem Brecht er höfundur að, eru á- kæra, viðvörun, blóðugt háð og beiskjufull mótspyrna. Eisler beitir tólftónatækni i flestum þáttum verks- ins. Það er eflaust engin tilvilj un, því að hér stendur efnið stíl Schönbergs nær en í flestum verkum Eislers öðr- um. Hér reynir Eisler einnig að „greina tækni frá tjáningu“, breyta tjáningarblænum og samræma hug- myndaheimi sínum. Það má fá allglögga hugmynd um aðferð hans af kaflanum „Æsinga- maðurinn í sínkkistunni“. Texti Brechts er blóðugt háð: „Sínkkistan sú arna / geymir líkamsleifar manns / eða fætur og höfuð af honum / eða ef til vill ennþá minna. / Því hann var æsingamaður. / Grafið hann. / Á hann er sannað, að hann er undirrót alls ills.“ Röðin, sem lögð er til grundvallar tónsetningunni, er nærri skrefjöfn að samsvörun, og litlar og stórar þríund- ir, þríhlj ómamyndun og vísitóna- notkun benda á tónalan grundvöll. Hún verður frumform skýrra, sam- þjappaðra og fjölbreyttra stefja. Og meðferð þeirra leiðir í ljós, að jafn- vel tónfallaeðlið gægist lævíslega fram hvað eftir annað og fær þá oft á sig óvæntan og annarlegan blæ. Á svipuð fyrirbæri rákumst vér einnig við atbugun á fyrrnefndum verk- um. Með frumlegri aðferð, sem er mj ög lík Eisler, lætur hann heimsskoðun sína og fagurfræðileg sjónarmið í ljós. Tónsetningin er hér löngum í fullkominni mótsögn við orðahljóðan textans, eins og í mörgum öðrum verkum Eislers, þótt boðskapur hans sé tónskáldinu hugfólginn. Nöpru háði Brechts er ekki fylgt. Eisler fagnar þar vini, sem er æsingamaður- inn svo nefndi, brautingja bjartari tíma. Hann kemur þegar til móts við hann í þeim hug. Því er hinn harm- þungi tónblær, sem fylgir orðinu „æs- ingamaður“, og því eru tónar sorgar- göngulagsins, sem á eftir fara. Og á þeim stað, þar sem Brecht lætur í það skína — og enn með blæ af liæðni — til hvaða fádæma æsinga- maðurinn hafi nú æst, „gegn sulti og 182
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.