Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 73
volroka („Zum Satlessen und Trock- enwohnen . . .“), birtist jafnvel sjálf mynd baráttumannsins, hetjunnar, ekki með öllu óvingjarnleg, kölluð fram af kunnum bljómum eislerskra göngustefja. Síðasti þáttur „Þýzku sinfóníunn- ar“ er einnig mjög lærdómsríkur, að því er þetta varðar, en það er kór- kafli, sem aðeins tekur eina mínútu að flytja, svo spunastuttur og ein- faldur sem unnt er. Eisler samdi þennan kafla síðar og gerði að loka- kafla „Þýzku sinfóníunnar“. Hann fellur inn í heildarsamræmi með hin- um köflunum, enda þótt Eisler hafi gert hann úr öðrum tónefniviði. Því að hann er samkvæmur þeim að sniði. Hið ferhenda kórvers er þann- ig: _ Ó, synir vorir, seyrt og daufheyrt lið hjá sýldum heltisvögnum, spenntir frá: Æ, oft þarf grimm- ur úlfur smugu við, þeir einnig! Frostið hítur, vermið þá. Hér lýsir Eisler ekki hinum beiska texta. Það er eins og hann horfi til baka frá sjónarhæð þess, er síðar skyldi verða, og tónar hans stafa ró- legu trúnaðartrausti. Það lætur hann í ljós með öðrum ráðum og hafnar tylftarkerfinu með öllu. * Eins og Eisler gerði sér títt um raðkerfun að hætti Schönbergs, það skeið sem hann var erlendis, þó hann Eisler og Schönberg héldi sjaldnar en hitt fast við hana og reyndi jafnan að sveigja hana til þjónustu við listskilning sinn og lífs- skoðun, — eins lagði hann tylftar- kerfið aftur á hilluna til fulls, er hann var setztur að í Þýzka alþýðu- lýðveldinu. Hann taldi að vísu þessa tónsmíðaaðferð meðal margra þeirra, er beita mætti í ákveðnum listsköp- unartilgangi, enda þótt fáir hafi hana til fulls á valdi sínu, en notaði hana ekki framar við tónsmíðar. Og skýr- ing hans, er ég spurði hann eitt sinn um þetta, var stutt og laggóð: „Ég þarf hennar ekki við til að vinna þau verkefni, sem ég set mér.“ Þetta var svar skapandi listamanns, sem ekki lætur tilfundna kreddu segja sér fyrir um tækni og tjáningargrundvöll, heldur efni og inntak verka sinna. Hann var nú staddur í nýju umhverfi sósíalismans, sem verið hafði tak- mark óska hans og vona og ævilangr- ar baráttu. Hæðni, beiskja og ákæra viku fyrir þeirri þörf að gefa mál þeim tilfinningum, sem frumbýlingar sósíalismans bera í brjósti. Tónsmíðastíll hans þau alltof fáu ár sem hann lifði og starfaði í Þýzka alþýðulýðveldinu virðist áður undir- búinn annars vegar af barátlubrag, ljóðsniði og frásögusniði verka hans á árunum fyrir 1933, svo sem tón- verksins við „Móðurina“, „Varúðar- ráðstöfun“ og svo fjöldasönglaganna, — en hins vegar heiðríkju, fögnuði og frjálsræði tónsmíða eins og sjö- 183
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.