Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 77
að væri um höfund hvers þess hluta,
sem nú er óvitað um höfund að. Saga
Hákonar konungs gamla er ekki að-
eins öruggasta heimild okkar um
staðreyndir íslenzkra atburða, þar
sem þeirra er getið, af því að við vit-
um, að maður þeim nákunnugur
skrifar tiltölulega skömmu eftir að
þeir gerast, heldur verður einnig auð-
veldara að átta sig á, hvar hugsanlegt
væri að hallað sé máli af huglægum
ástæðum, því að okkur er þá fullkom-
lega ljóst, frá hvaða sjónarhóli höf-
undurinn lítur á atburðina. Þorgils
saga skarða er okkur skýrari og ör-
uggari sem heimild, þegar við lesum
hana með það í huga, að Þórður Hít-
nesingur, mágur Þorgils og nánasti
förunautur meginhluta ævinnar, hafi
ritað hana. Líkurnar fyrir því, að
heimildirnar að Þórðar sögu kakala
séu komnar frá Svarthöfða Dufgus-
syni, frænda Þórðar og förunauti á
baráttuárum hans til valda og síðan á
valdatíma hans, varpa sínu ljósi á
viss atriði þeirrar sögu. Ef allt í einu
sannaðist, að Snorri Sturluson hefði
ekki komið nærri samantekt Heims-
kringlu, þá yrðu fræðimenn að gjöra
svo vel og umturna skýringum við
það rit, svo að víða stæði ekki eftir
steinn yfir steini. Egils saga fær nýtt
gildi og upplykur nýjum leyndardóm-
um, þegar hún er lesið með hliðsjón
af því, að hún hafi dropið úr fjaður-
staf afkomanda hans og eftirmanns á
Borg, Snorra Sturlusonar. Það er
StaShæfing gegn staðhœfingu
skammt síðan, mælt á mælikvarða
rannsóknarsögu íslenzkra fornbók-
mennta, að Björn Ólsen rökstuddi
það fyrstur manna, að Snorri myndi
vera höfundur Egils sögu, og mun nú
vera litið á það sem staðreynd, með-
an ekki koma fram ný rök, sem í móti
mæla. Lengi var vappað í kringum
Grettis sögu að leit að höfundi, og
var Sturlu Þórðarsyni gefið horn-
auga sem líklegum. Guðni Jónsson
henti þó á annan og færði nokkur að-
gengileg rök fyrir faðerninu. Þá kom
Sigurður Nordal til skjalanna, vék sér
beint að Sturlu og kenndi honum
krógann með svo sterkum rökum, að
Guðni tók sína tilgátu til baka, að-
hylllist það, sem honum þótti sann-
ara reynast, og ég hef það fyrir satt,
að héðan í frá verði Grettis saga les-
in og krufin til mergjar með hliðsjón
af Sturlu Þórðarsyni sem höfundi. Nú
er tekið að skyggna Hrafnkels sögu
Freysgoða með Brand biskup Jóns-
son sem höfund í baksýn, og með
splúnkunýrri rannsóknaraðferð þyk-
ist Pétur Hallberg hafa fært sönnur á
það, að Laxdæla saga sé rituð af Ól-
afi Þórðarsyni hvítaskáldi. Og þess
verður ekki langt að bíða, að fræði-
menn komi sér saman um, að for-
ynjusagnameistarinn Sturla Þórðar-
son, höfundur Grettis sögu, hafi lagt
smiðshöggið á Eyrbyggju,með Fróð-
árundrum, Þórólfi bægisfæti og grið-
ungnum Glæsi.
Sumir eru mjög efins um mögu-
187