Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Side 103

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Side 103
þeirra. í hinni fyrrnefndu — lengstu sögu bókarinnar — er ununarsamlegt skop í dökkum lit; niðurrifsskop; níð kveðið um fjölskylduvé og heiðvirt hjónalíf, spott og spé jafnt um ófrelsi og frelsi góðs borgara. Orð eins og „hesta kona“, „myndarkona“, „heiðvirð kona“, „jietta virðulega hús [...] siðmentandi og þögult“, „ábyrgðarþúngi og siðgæðistilfinníng samfara kristilegri með- alhegðun sem uppheldur þjóðfélaginu" — þessi orð í neikvæðri speglun sýna nokkuð hvert stefnt er í sögunni, þó að í þeim birt- ist enganveginn blæbrigði eða uppsprettur skopsins. Hér skal engin tilraun gerð til að sundurgreina þetta skop, aðeins skal þess getið að höfundur notar raunar eina af klassískustu aðferðum skophöfunda: að af- klæða „manninn" félagslegum „dulbún- ingi“ sinum til að sýna nekt hans; annað alkunnugt mótíf eru hinir tveir kumpánar, skálkurinn og einfeldningurinn, en hvort- tveggja efnið nær höfundurinn að gæða lífsmætti nýstárleikans. Ég hika ekki við að segja að húmorinn í þessari sögu er stór- fenglegur, — en kannski auðnast oss ekki að skynja húmor fremur en Svisslending- um að sögn Durrenmatts, ekki hinn undir- furðulega, hinn andríka, hinn þróttmikla. En hinn þróttmikli húmor, sem segir þrátt fyrir allt það sem menn treysta sér sízt til að segja opinskátt (samkvæmt skilgrein- ingu Freuds), mun reyndar vera sjaldgæft fyrirbæri í íslenzkum bókmenntum, svo mönnum er líklega vorkunn. Auðvitað er skop þessarar sögu ekki allt þar sem það er séð, það eflist til dæmis stórum af árekstrinum við ólíkindalegan frásagnarháttinn, hinn „hægfara setníng sem prýðir góðan sögumann“. En þar á of- an gerir sagan skop að sjáljri sér, leysir sjálja sig í sundur, endar í tvíræði og snýr sér frá lesandanum. Það er ekki aðeins nokkuð hæpin „draumkona vikublaðsins, álfko"« nútímaþjóðsögunnar" sem sundrar Vmsagnir iim bækur sögunni, heldur einkum matrónan góða, sem stendur að lokum með pálmann í hönd- unum: spuming, óskiljanleiki, storkun. Sagan verður annað en hún virtist vera. Það er mögulegt að líta á þessa byggingu aðeins sem tækni, sem bragð höfundarins til að halda lesendum í hæfilegri fjarlægð. Sú viðleitni er algengari en menn kynnu að halda að óathuguðu máli, og á sér djúp- stæðari orsakir en svo að nægjanlegt sé að hrista höfuðið yfir henni. Höfundur sem er að byrja að skrifa heldur gjarnan að hann sé að gefa sig lesendum heilan og óskiptan. Hann kemst fljótlega að því að aðeins litl- um hluta gjafarinnar er tekið með þökkum, og að sá hluti er gerður að allt öðru en hann vildi. Því ástríðufyllri og opinskárri sem höfundurinn var, því meiri líkur em til að verk hans séu „túlkuð“ af lesendum í allt aðra átt en honum gat dottið í hug. Dreginn út úr þeim einn þáttur, teygður, tættur, — hinum kastað á glæ. Höfundur- inn rekur sig á takmarkaða samskiptahæfni mannlegra vitunda. Við þessa annmarka verður hann að búa, sætta sig við að þeir séu fylgifiskur stöðu hans í heiminum, og starfa þrátt fyrir þá vitneskju. Nú veit höf- undurinn raunar að veruleikinn er vem- leiki og bók er aðeins hók, en við þessum vanda getur hann snúizt á þann hátt að leitast við að gera bækur sínar sjálfum sér nœgar eins og veruleikann, ógagnsæar eins og veruleikann. Hann neitar að draga nið- urstöður fyrir lesandann, hann „setur upp“ sjálfstæðan heim og lætur lesandann um að rata um þann heim. Vér hyggjum raunar að í þessu sé nokkur sjálfsblekking fólgin, en ekki að viðleitnin sé einskisnýt eða ástæðulaus, og hitt er óhrekjanlegt að hún er mikilsráðandi í bókmenntum þessara ára. En það er líka hægt að skoða sundrungu sögunnar sem augljóst merki þess að skop- ið sé aðeins aukaatriði, eða betur sagt: að 213
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.