Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 107

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 107
sagt, — og þar í felst þegar vottur veik- leika. Persónan X er samansett úr ýmsum þátt- um en dulrænn mannsskilningur er ein helzta forsenda hennar. Sá skilningur er ef til vill eldri en allt annað í „heimsmynd" Halldórs Kiljans Laxness, og á kannski rætur í aldagömlum vestrænum quietisma og trúarhugmyndum, og í rómantískri eða síðrómantískri eða symbólískri dulhyggju, sem hefur átt sér gróðurreit í hinni ungu íslenzku skáldakynslóð kringum 1920. Ætli sé ekki nærri sanni að þessi dulhyggja birtist einkum í því að persónurnar sem bera merki hennar eru upphafnar yfir heim- inn, þær þurfa ekki á að halda hinum venjulegu „óhreinu" meðölum sem hvers- dagslegir menn eru dæmdir til að nota til að geta lifað. Þær nálgast raunar að vera fullkomnar í dulspekilegum skilningi. „Magischer Idealismus" rómantíkurinnar er ekki langt undan. Ég hygg að þessi skiln- ingur varpi nokkrum blæ á sumar mann- lýsingar Halldórs Laxness frá byrjun, án þess þó ég rugli honum saman við þá snilld- arlegu niðurstöðu sem hann hefur að leið- arljósi í flestum merkustu persónulýsing- um í seinni verkum sínum: að mannlegur veruleiki gengur ekki upp eins og reikn- ingsdæmi, að það verður alltaf eitthvað eft- ir óskýrt, eitthvað sem ekki er hægt að nálgast. Ég held sé rétt að leggja einnig áherzlu á það hversu quietisminn í almennri merk- ingu á mikinn hlut að tilorðningu persón- unnar X vegna þess að sá dulræni bak- grunnur bennar er varla til kominn fyrir áhrif taóismans á lffsskoðun Halldórs Lax- ness.1 Miklu líklegra er að taóisminn verði nokkurskonar viðbót við þær dulrænutil- 1 Peter Ilallberg hefur skrifað ágæta grein um það efni, „Litla bókin um veginn og Halldór Laxness“ (Tímarit M. m. 1962). Umsagnir um bœkur hneigingar sem voru samgrónar Halldóri Laxness frá fyrsta fari. Nú er hinn aust- ræni quietismi Bókarinnar um veginn eng- anveginn ólíknr vestrænum quietisma og dulhyggju, -— sumir paradoxar hennar eiga sér næsta nákvæmar hliðstæður í Nýja- testamentinu, svo ekki sé talað um hér um bil orðréttar líkingar við speki Heraklíts, — hvort sem um er að kenna hæpnum þýð- ingum hins kínverska smákvers, sem sumir fróðir menn telja óþýðanlegt, og jafnvel ó- skiljanlegt á frummálinu ... En það er samt víst að þessi viðbót hefur haft breyt- ingu á stefnu í för með sér, nýjar áherzlur, og einkum fastari áherzlur. En raunar er „taóismi" Halldórs Kiljans Laxness mjög persónulegur: fróðlegast er að sjá hvað það er í taóismanum sem hann hefur dregið til sín, og hvaða afbakanir taóisminn hefur orðið fyrir í meðferð hans. Ahrifa taóismans á mótun skáldsagna- persóna sér naumast stað í verki Halldórs Laxness fyrr en í Ljósvíkingnum, en þau eru þar mjög almenns eðlis, og stopul, einna helzt bundin hinu lýríska registri verksins. Þó verður þar þegar vart atriðis sem einna staðfastlegast einkennir persónuna X: það er sú fyrirmynd mannlegra athafna sem felst í formúlunni „að starfa án strits" eða „að rnega sín mikils án þess að láta til sín taka“.2 Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta líklega eini þáttur persónunnar X sem ekki væri unnt að skýra öðruvísi en með tilvísun til taóismans. Þar með er þó ekki sagt að áhrif taóismans á heildarblæ persónunnar séu ekki önnur og meiri, né heldur að til hans verði ekki raktir að nokkru aðrir þættir hennar sem síðan hafa umskapazt svo mjög í meðferð höfundarins að þeir eru vart þekkjanlegir aftur. Umburðarlyndi er til dæmis tema sem - Hér er vitnað í þýðingu þeirra Jakobs Smára og Yngva Jóhannessonar. 217
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.