Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 117

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1965, Page 117
getur þess ekki að hún var ein aðal-uppi- staðan í hinni austurlenzku, konunglegu ídeólógíu sera hann aðhylltist á undan Ágústusi. Miskunnsemi hans var kænsku blandin, því að fyrirgefningin veitir [lá sið- ferðilegu yfirburði er keisari þarf að hafa til að bera. Þar að auki hefði Caesar setið yfir höfðingjalausri Róm ef hann hefði ekki sýnt hæfilega miskunn. Og án sam- þykkis öldungaráðsins hefði hann ekki getað grundvallað vald sitt. Síðasti hluti fyrra bindis er helgaður sögu keisaraaldar, frá Ágústusi til Domiti- anusar. Höfundur er helzti fjölyrtur um hið svallsama líferni kládíó-júlíönsku keisar- anna sem er vissulega skáldsögu líkara, en rúminu hefði betur verið varið til heildar- yfirlits um þær breytingar sem urðu á öllu stjórnarkerfi ríkisins á þessari öld, svo og á efnalífi og stéttaskipan sem aðeins stutt- lega er getið í lokin. Lesandanum veitist ekki heildarsýn yfir þessa þætti með því að frásögnin klofnar um hver keisaraskipti. Hann saknar greinargerðar um það hversu Agústus og eftirkomendur hans ummynd- uðu stjómarstofnanir lýðveldisins, tæmdu þær að lýðræðislegu innihaldi án þess að breyta forminu, sér til veldisauka, og fengu þannig viðhaldið þeirri blekkingu lengi vel að þeir væru aðeins oddvitar meðal jafn- ingja — prími inter pares. Síðara bindi Rómaveldis hefur flesta kosti fyrri hlutans. Jafn beztan má telja fyrsta þriðjung þess er fjallar um mannlíf og menningu á tveim fyrstu öldum keisara- dæmisins og stjóm kjörkeisaranna, frá Nerva til Commodusar, sem margir hafa kallað gullöld heimsríkisins — það skeið er það náði fullkomnastri einingu og skatt- löndin þróuðust til pólitísks og menningar- legs jafnréttis við Ítalíu. Ut frá því sjónar- miði hefði verið rökréttara að fjalla um menningu heimsveldisins á þessu tímabili sem eina heild, en ekki kljúfa hana í sund- Umsugnir um hicku, ur eftir löndum. Plútark ritaði að vísu ævisögurnar í heimaborg sinni í Grikk- landi, en hann hefði eins vel getað skrifað þær í Róm eða á Spáni, því að á annarri öld e. Kr. var hámenning Rómaveldis ein og óskipt. I heild stendur þó síðara bindið hinu fyrra að baki: Það er lausara í reipunum, hlutfallið milli þess rúms sem varið er til hvers efnis er vafasamara og höfundur sýn- ir ekki alls staðar nógu mikla varfærni í mati sínu á heimildum og í ályktunum. Annar þriðjungur bókarinnar fjallar utn heimsríkið fram að 192 e. Kr. Það er gagn- legt yfirlit, cn gallinn er sá að það er frem- ur staðfræðilegs en sögulegs eðlis, ein- skorðast um of við upptalningu borga og ininnismerkja þeirra sem þar getur enn að líta. Þessi kafli er of brotakenndur til þess að hann fái veitt sýn yfir „rómaniseringu" hinna vestlægu skattlanda, Spánar, Gallíu og Bretlands, breytingu þeirra úr ósiðuð- um ættsveitarfélögum í sambland af róm- verskum og innlendum borgaraþjóðfélög- uin. Höfundur telur upp ótal borgir sem Rómverjar stofnuðu í löndum þessum, en honum láist að skýra í heild frá tilgangi þeirra, eðli, stjórnarháttum og réttarstöðu. Lesandinn fær ekki vitneskju um, hvað hin rómverska civitas var í raun og veru og í hverju frumleiki hennar og yfirburðir voru fólgnir miðað við hina grísku polis. Þar af leiðandi getur hann ekki gert sér þess grein hvernig rómaniseringin fór fram — hvern þátt herinn átti í henni; — hvern- ig hinn sveigjanlegi Iatínaréttur varðveitti sjálfræði, stofnanir og persónurétt inn- fæddra, jafnframt því sem hann veitti þeim mikið til sömu fríðindi og rómarréttur; — hvernig heimsveldið þokaðist smám saman í átt til réttarlegrar og stjórnarfarslegrar einingar fyrir tilverknað hinnar sveigjan- legu löggjafar Rómverja. Þá má lesandinn einnig sakna greinargóðrar lýsingar á 227
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.