Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Síða 23

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Síða 23
Tíu þúsund ár bókmennta verkið vinnst léttar fyrir vikið. Það sem ég vildi sagt hafa er þetta: Hemingway er sennilega ekki yfirburðahöfundur en gildran sem ber að varast er að hann virðist auðveldur en er ekki allur þar sem hann er séður. Einfaldleiki Hemingways er útspekúleraður. Samt sem áður er það einkum starfsaðferðin, vinnubrögð Hemingways sem vekja áhuga minn. Hvað með máliðf Ég þekki Hemingway bara af þýðingum. Hvað viltu segja um andrúmsloft Hemingways og uppruna? Eg get sagt þér nokkuð: á tímabili lá við að Hemingway gerðist karabískur höfundur þar eð hann var búsettur á Kúbu. En hann nær því ekki af því hann er samsettur úr heilli bókmenntateoríu og verk hans svara til hennar. Er þá önnur kenning og annar veruleiki sem snýr að karabískum höfundum? Hver og einn verður að kljást við sinn eigin veruleika, það er óumflýjan- legt. Höfundur sem starfar ekki á eigin raunveruleika og út frá eigin reynslu, veður í villu og svíma. / gxr minntistu á Faulkner. Þú talaðir um að Suðurríkjamaðurinn Faulkner fjallaði um umhverfi sem minnti á Kólomhíu... Faulkner er karabískur höfundur. En Hemingway ekki? Að sjálfsögðu ekki. Tökum til dæmis smásögu á borð við Eftir óveðrið, sem er aðdáunarverð. Samt hefurðu á tilfinningunni að Hemingway gefi sér aldrei lausan tauminn, alltaf eitthvað sem heldur aftur af honum. Hverju gefur hann ekki lausan tauminn? Imyndunaraflinu? Já, af því Hemingway kennir og setur fram kenninguna um aga í bókmenntum. Hann er agapáfi bókmenntanna. En ég endurtek það sem ég sagði áðan: gildi hans liggur fyrst og fremst í sjálfum bókmenntaviðbúnað- inum þótt einnig þar komi margir til álita. Þú hafnar þá ekki sptenskum bókmenntum? Oðru nær, það er vonlaust að ávaxta bókmenntaarf mannkyns ef maður er ekki heima í þeim tíu þúsund árum sem búa á bak við. Mér hefur ekki verið tíðrætt um spænskar bókmenntir, reyndar er ég ekki mikill aðdáandi spænsku skáldsögunnar með fyrirvara um Cervantes og prakkarasöguna (píkareskuna), en þar rís spænska skáldsagan hæst. Eg tek fram yfir Cervantes höfund smákvers sem sjaldan er minnst á, Lazarus frá Tormes. Venjulega er hugflæðið (stream of consciousness) talið Joyce til tekna og vissulega er Joyce minnismerki í heimsbókmenntunum. Snilld og árangur Joyce í hugflæðistækni eru óvéfengjanleg þótt ég taki tækni Virginiu Woolf fram yfir sem vann að henni á sama tíma svo erfitt er að skera úr um hvoru 141
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.