Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Qupperneq 90

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Qupperneq 90
Tímarit Mdls og menningar sem manneskju og konu, er andvaka með henni í myrkri næturinnar sem gerir alla jafna (121), þjáist og gleðst með henni. Hann upplifir tilfinningar hennar til Arnalds með henni, og þegar hin „sálfræðilega og félagsfræðilega“ skýring er gefin á Arnaldi eins og Arni orðar það, þá er hún sprottin úr hugsun Sölku Völku, ekki komin frá hinum íroníska sögumanni (378—9). Þessi sögumaður leggur frá upphafi áherslu á díalektíkkina í fari Arnalds. Hann er ekki einhlítur heldur síbreytilegur: „Eins rökvís og ræða hans hafði verið um kvöldið, eins tilviljunarkent var fas hans að morgni“.(306) Sögumanni er í mun frá fyrstu tíð að koma því að hvað Arnaldur er ósvífinn áróðursmaður — eins og þegar hann hefur haldið langa tölu yfir Sölku um sífilis kaupmannsdótturinnar og prentsmiðjur auðvaldsins, þá segir: „Hann lét staðar numið í róginum og horfði á hvað hún var stór og sterk“. (309) Salka veltir fyrir sér andstæðunum í fari hans aftur og aftur, það er hennar hollasta lexía ásamt hugmyndum hans um annars konar líf. Með aðstæðunum gefur hann höggstað á sér og um leið fer Salka að hugsa sjálf. Eftir að ástir takast með Sölku og Arnaldi má svo heita að fyrri sögumaður, sá íroníski, hverfi úr frásögninni og láti sögumann Sölku einan um frásögnina. Þá verður Arnaldur uppalandi Sölku í fullu starfi, því hún á að verða sá maður sem Halldór Laxness vildi gera úr íslenskri alþýðu. Það má ekki gleyma því að þetta er „pólitísk ástarsaga". Það er ólík frásagnartækni sem veldur ólíkum myndum af Arnaldi í sögunni, ekki það að afstaða höfundar til hans taki grundvallarbreytingum. Arnaldur er ögrandi persóna frá því hann kemur fyrst fram í sögunni, öðruvísi en annað fólk bæði í augum Sölku og annarra. Hann er upp- reisnarmaður í öllu gildismati og stendur aldrei í stað. Einmitt þess vegna er hann hollur samfélagi Oseyrar og Sölku Völku. Nú hefur lengi verið rætt um Arnald og mál að snúa sér að Sölku sjálfri og þeirri óbeit sem Árna finnst Arnaldur (og höfundur?) hafa á henni. Er Salka Ijót? Sölku Völku er lýst hvað eftir annað í bókinni, fyrst strax í fyrsta kafla þar sem lýsingin endar svona: „allur líkaminn ólgaði af óstýrilátu fjöri.“ (10) Framarlega í seinna bindi sögunnar stillir sögumaður sér upp við hlið Jóhannes Bogesens og horfir á stúlkuna þaðan (244): . . .hún var á hæð við gervilegan karlmann, baröxluð og réttvaxin, barmur- inn hveldur undir ullarpeysunni. Hár hennar ljóst og þykt var klipt uppí miðjum hnakka og skift í vánganum, augu hennar skær og djörf, kjálkarnir sterkir og karskir, varirnar ríkar og dálítið stórgerðar, hendurnar stórar og vinnulegar, röddin í dýpra lagi, full af eiginleikum. 208
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.