Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Side 125

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1982, Side 125
Umsagnir um bœkur hans. Þannig fær lesandinn að vita eitt og annað um Guðnýju, þó að höfundur hefði svosem að ósekju mátt leggja ögn fleiri orð í munn þessarar ágætu konu. I öðru lagi lýsir sagan heimi sukkaðra ungra manna í leit að sjálfsmynd, og rökrétt afleiðing þessa er að þeir komi fram við konur sem hálfgerðir huldu- hrútar. Þeim er t.d. gjarnt að líta á konur sem ógnun við frelsi sitt, kynver- ur sem vilji binda þá á klafa hjóna- bandsins. En allt bendir til þess í lokin að Guðjón ætli að láta þessa afstöðu lönd og leið, og að það verði upphaf vitundarvakningar hans ...(!) Og sann- ar það ekki að höfundur taki gagnrýna afstöðu til marghataðs viðhorfs? Að öllu samanlögðu sýnist mér að Einar Kárason megi vera ánægður með þessa frumraun sína á sviði skáldsagna- gerðar. Persónusköpun sögumanns er fagmannleg, hugmyndaheimur töffar- anna kemur skýrt fram í drykkjuþrugl- inu, vettvangslýsingar eru sumar hverj- ar óborganlegar s.s. úr Háskólanum og af Borginni, myndmál sömuleiðis eins og í eftirfarandi samlíkingum: í timbur- mönnum líður Guðjóni eins og hann „hefði klætt heilann í ullarnærbol” (32); giftingarathöfn í dómkirkjunni „snigl- aðist áfram einsog langdregin tilrauna- mynd í kvikmyndaklúbbnum“ (71), að ógleymdri upphafssetningu bókarinnar: Mér nægir að hugsa um slag- vatnslykt til að finna sjóveikina skríða einsog þúsundfætlu niður vélindað. (7) Þannig fór um sjóferð þá, vonandi verð- ur ekki langt að bíða þeirrar næstu. Jóhanna Sveinsdóttir OG ÞAÐ VARÐ ÁST Ein viðamesta ljóðabók frumútgefin á síðustu vertíð var síðasta bók Matthí- asar Johannessen til þessa, Tveggja bakka vebur (AB 1981), 198 blaðsíður og skiptist í 15 kafla. Fljótt á litið er hún líka margbreytileg að efni og formi, en þegar betur er að gáð kemur í ljós að sömu hugðarefni sækja að skáldi í flest- um köflum, sígild og seint útrædd: ást- in, hverfulleikinn og dauðinn. Formið er frjálst á flestum ljóðunum, en bundið þegar Matthías vill hafa mikið við látna menn, mikil skáld og dómkirkjur. Mér þykir frjálsa formið eiga miklu betur við Matthías, hann verður stundum yfirmáta hátíðlegur orðskrúðsmaður í hefðbundnu kvæðunum (sjá t.d. Séra Matthías, 85). Almennt má segja um bókina að hún sé orðmörg og merking sumra ljóðanna verði óljós þess vegna, en þar má finna margt að una sér við. Hugðarefnin áðurnefndu, ást, hverf- ulleiki og dauði, sem Matthías yrkir um í Tveggja bakka veðri, eru nátengd í ljóðunum og varla unnt að fjalla um eitt í einu svo vel fari: ástin hefur vitjað hans þótt honum finnist hann gamall orðinn, þessi ást er hverful og það finnst honum lífið vera líka, og sú hugsun leitar á hann æ ofan í æ að allt sé þetta til einskis, lífið tilgangslaust, dauðinn eins og tilviljun. Fyrsti bálkur bókarinnar heitir Þú ert kvöldsól á heiðinni, og eins og nafnið bendir til er kona ávörpuð í ljóðunum, ástmær sem birtist seint í lífi skálds, „kveðja frá veröld sem vitjar mín enn“ (11). Ljóðin tjá milda, jafnvel auðmjúka hlýju karlmanns sem hefur búið við harða drauma en lifir eitthvað óvænt á þessari ögurstund ævi sinnar, nýja til- finningu. Víða eru undurfallegar mynd- 243
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.