Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 44

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Page 44
Tímarit Máls og menningar undan honum, sem sótti sér kraft til klassískrar menningar Italíu þegar honum ofbauð þröngsýni og afturhald heima fyrir. Þar af leiðandi gerir Lukács meira úr áhuga Goethes á framfaramálum, pólitískri framsækni hans, en efni standa til. Goethe hefði einna helst viljað lifa eins konar sögulega málamiðlun í Þýskalandi. Til þess sáu auðvitað ráðaöfl Þýskalands litlar ástæður, úr því þau áttu ekki í höggi við neina fjöldahreyfingu fyrir lýðstjórn í frönskum byltingaranda. En alþýðuuppreisnir og byltingar voru Goethe síst að skapi, enda yfirleitt ekki mjög siðfáguð fyrirbæri. Goethe mun einhvern tímann hafa látið svo ummælt að land hans ætti sér ekki sígildar bókmenntir, til þess skorti allar forsendur, svo sem mikilsverða hefð og viðburðaríka sögu sem skáldin gætu ausið af. Og hann bætti því við að hann óskaði sér ekki þeirra stjórviðburða í þýskri sögu, sem gætu fætt af sér miklar bókmenntir.2, Leo Löwenthal kemur betur auga á tvíræðnina í boðskap Námsáranna en Lukács, en honum fer líkt og Brandesi, hann einblínir á hugmyndir bókarinnar en fæst lítið um hvernig þær tengjast innri gerð eða strúktur verksins. Jafnvel þótt þeir skoði báðir verkið frá sjónarhorni sögunnar, setja þeir hugmyndir Goethes ekki alltaf í sögulegt samhengi (skoða t. d. ekki hinn sterka aristókratíska þátt í mannskilningi hans). Löwenthal er öðru fremur félagsfræðingur, eða öllu heldur félagsheimspekingur og það er kannski helsti galli ritgerða hans frá þessum tíma að hann hefur ekki smíðað sér neina kenningu um sérstöðu bókmennta umfram aðra texta (hvað gerir ákveðin verk að bókmenntum?). Þær eru honum heimild um sálræna úrvinnslu hugmyndafræði og söguþróunar. En hann gerir sér ekki alltaf nógu vel grein fyrir því á hvern hátt höfundur — meðvitað eða ómeðvitað — vinnur með lífsviðhorf sitt, hvernig hugmyndafræðin gerjast í honum þegar hann skrifar skáldverk. Listrænt form þess, sem m. a. ræðst af bók- menntalegri hefð og öðrum utanaðkomandi áhrifum, getur stangast á við þá félagslegu hugmyndafræði sem höfundur sjálfur kann að vera gegnsýrður af; ritun þess getur líka orðið honum tilefni sjálfskönnunar og -gagnrýni (sbr. samanburð Arna Sigurjónssonar á Alþýðubókinni og Sölku Völku í TMM 1 1982). Lukács og Löwenthal taka lítt eða ekki mið af ýmsum þáttum í sögulegri framvindu kapítalisma á tíma Goethes þegar þeir skrifa um gamla manninn. Til dæmis má taka uppkomu og vöxt nýs lesendaskara úr lægri borgarastétt og miðstéttum, og þar með þróun bókamarkaðar sem smám saman leysir af hólmi gömlu furstahirðirnar sem eiga í kreppu sem liststofnanir. Þessu tengist síðan sá frægi aðskilnaður „afþreyingar“ og „góðra“ bókmennta (því má þó ekki gleyma að þegar Lukács og Löwenthal skrifa sínar ritgerðir um Goethe eru bókmenntafræðingar almennt mjög sinnulausir um þessa 538
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.