Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Síða 122

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1982, Síða 122
Tímarit Máls og menningar í skefjalausri leit hugans að nýjum svæðum nýjum mörk- uðum; (Sendisveinninn, 17) I þessum heimi ráða neyslan, varan og áróðurinn ríkjum. Fyrirbæri af þeim vettvangi hafa því áhrif á ljóðmálið; „bjöllurnar kyntu sál þína með hi-fi græjum". Þannig færir Einar þjóðfélagsgagnrýni sína inn í innsta kjarna ljóðmálsins. Svip- að gildir um byggingu margra ljóðanna því oft túlkar Einar mótsagnakenndan heiminn í margræðum og ruglingslegum ljóðum. Aðferðin minnir um margt á módernista, ljóðmálið er samræmt veru- leikanum. Ljóðin eru því oft sundurlaus á yfirborði og lesandi á erfitt með að átta sig á því flæði staðhæfinga, tilfinninga og mynda sem hann sér hrannast upp. Röklegt samhengi er víða fyrir borð bor- ið, hugmyndatengslin eru svo óljós. Þar sem mest gengur á í ljóðunum er hraðinn líka mestur. Ljóðin eru á fleygi- ferð. Svo enn sé vitnað í „flassbakk um framtíðina": og hvort sem það var oní dýpstu myrkur útí skógarrjóðri þar sem bjöllurnar kyntu sál þína með hi-fi græjum með útsýn til annarra landa eða kaggi sem rótaði malbikinu upp undir bongótrommum dauðans undir byljandi rokktónlist og efni samtvinnast á áhrifamikinn hátt. I sama tilgangi — og með sama rétti — smíðar Einar oft myndir sem ekki „ganga upp“, frekar en veruleikinn. En myndsviðið og veruleikinn eru heldur ekki alltaf þægilega aðgreind. Stundum er líka erfitt að greina líkinguna þar á milli. Oft virðist lesandanum ætlað að ganga frá ófullgerðum myndunum — ef það er þá hægt: eletrónisk sál þín stígur úr líkamanum einsog plata sem lendir í vitlausu umslagi, en gættu þín stalín er búktalari sem yfirgnæfir rödd þína þegar minnst varir, og útópísk sólin einsog jimi hendrix með brunninn gítar er fullkomlega út á þekju meðan geislarnir falla svipa um stofugólfið. (Sendisveinninn, 7) Einkum á þetta við um „Sendisveininn". Yfirvegaðri myndsmíð er þó algeng í bókunum. Sterkt einkenni hennar og reyndar málnotkunar Einars yfirleitt er þversögnin og óvenjulegt sjónarhorn sem nærri lætur að kalla megi sérstakt skáldskapareinkenni hjá honum. Ljóð hans eru ríkulega gædd þeim eiginleika góðs skáldskapar að orða hlutina upp á nýtt og bregða á þá nýstárlegri birtu: var það alltaf hið óhjákvæmilega sem hefði getað verið öðruvísi (8) Að þessu leyti finnst mér Einar vera fyllilega sjálfum sér samkvæmur. Form hvert hús var klefi hver fangi sinn eigin vörður (Róbinson, 9) inní myrkviði birtunnar rann skært rökkrið (Róbinson, 10) 616
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.