Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Page 109

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1989, Page 109
Þrjár sögur Hvítir steinarnir í árfarveginum virtust hafa á sér þennan sama blæ. Ef til vill skynjaði ég kvöldkomuna í ágengri kyrrð haustlaufs- ins, sem hafði fallið langt að ofan og var allt í kringum mig. En á djúpbláu vatni árinnar sást hvergi spegilmynd af laufi. Eg undraðist það en á augnabliki bar fyrir mig sýn af eldi sem rigndi á blátt vatn- ið. Það sem ég sá var ekki regn af eldglæringum í lausu lofti, heldur örsmá Ijósbrot flöktandi á vatninu. Það var þó enginn vafi að þessar agnir féllu af himni; þær hurfu í blátt vatnið ein af annarri. Ég gat ekki séð þær fyrr en þær lentu á vatninu, því að þær bar í lithverft laufið á leið sinni niður. Eg horfði upp yfir fjöllin. Eftir himninum bárust óteljandi eldglæringar með furðulegum hraða. Smám saman fór mjó himinræman að líkjast rennandi á fyrir augum mér, á sem virtist bera með sér allar þessar eldglæringar milli fjallstoppanna. Þetta var sýn sem bar fyrir mig um borð í hraðlest á leið til Kyoto. Það var tekið að kvölda, og mér hafði runnið í brjóst. Eg var á leiðinni til að sjá unga konu á hóteli í Kyoto. Hún var önnur tveggja telpna sem ég mundi eftir frá því að ég lá á spítala vegna gallsteinauppskurðar einum fimmtán árum áður. Onnur telpan var ungabarn sem hafði fæðst án gallpípu. Þar sem slíkt barn hefði ekki lifað nema í ár eða svo, hafði verið gerð á henni aðgerð til að koma fyrir gervileiðara á milli lifrar og gallblöðru. Ég kom auga á hana í anddyrinu, þar sem hún hvíldi í faðmi móður sinnar. Eg færði mig til þeirra og rýndi niður á hana. „Til hamingju!" sagði ég við móðurina. „Hún er gullfalleg." „Þakka þér fyrir,“ sagði móðirin hljóðlega. „Þeir segja að hún deyi í dag eða á morgun. Eg er að bíða eftir að einhver komi og fari með okkur heim.“ Barnið svaf vært. Fötin hennar með kamelíumynstrinu bunguðu lítillega yfir brjóstið, sennilega vegna umbúðanna sem þöktu skurð- sárin. Það var verulega hugsunarlaust af mér að tala svona við móður- ina, en þar sem ég var meðal samsjúklinga hafði ég verið hispurslaus og ekki gætt að mér. Sérgrein þessa spítala voru skurðlækningar, og fjöldi barna var þangað kominn til að gangast undir hjartaskurð. Þau léku sér í anddyrinu og lyftunni þar til að aðgerðinni kom, og stundum fann ég hjá mér löngun til að spjalla við þau. Þau voru á 507
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.