Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Page 64

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Page 64
JÓN FRÁ PÁLMHOLTI arhimni 1991. Bókunum fylgdu ritgerðir um franska ljóðagerð. Merkust þeirra er ritgerðin Um franska ljóðgerð frá Victor Hugo til nútímans, sem prentuð er í lok síðustu bókarinnar. Sú ritgerð, einsog flest annað sem Jón Óskar skrifaði, ber skýr merki um viðhorf hans sjálfs. Hann leggur þar áherslu á að dadaisminn og súrrealisminn voru ein næsta samfelld hreyfing, þrátt fyrir deilur og þjark leiðtoga sem hirðin lét ekki segja sér fyrir verkum. Þannig afneitaði leiðtogi súrrealismans André Breton félögum sínum hverj- um af öðrum í nafni stefnunnar, án þess það hefði áhrif á sigurgöngu hennar. Kenningar Freuds um dulvitund og hvatalífvoru kveikjan að hugmyndum Bretons. Menn áttu að losa sig við allar hömlur tilað hugarflugið yrði frjálst. Breton var geðlæknir og sagt er að einn sjúklingur hans hafi kennt honum súrrealismann. Sá hét Vaché og neitaði að viðurkenna allar reglur, lifði einsog honum sýndist og dó þegar honum sýndist. Það væri kannski í anda stefnunnar að viðurkenna Vaché sem höfund hennar. Margt fleira var á döf- inni í París, m.a. vildu sum skáldin hallast að marxisma og a.m.k. tvö af þeim merkustu, Max Jacob og Robert Desnos dóu í fangabúðum Þjóðverja. Jón Óskar vann hreint brautryðjendaverk með kynningu sinni á franskri ljóðagerð, enda var þessi mikli suðupottur lítt kunnur flestum skáldum hér. Jón Óskar gaf mönnum heildarmynd af franskri ljóðstefnu, sem enn stendur og mun lengi gera. Þrátt fýrir innlifun sína í franskan skáldskap, gætir áhrifa þaðan furðu lítið í skáldskap hans sjálfs. Það er helst í Nóttinni á herðum okkar að greina má áhrif frá Eluard og víðar má finna spor hans og t.d. Ro- bert Desnos o.fl. í síðustu ljóðabókinni; Hvar eru strætisvagnarnir útg. 1995, þarsem höfundur yrkir um París með nokkrum saknaðarkeim fer andi þeirra Apollinaire og Blaise Cendrars stundum á loft og svífur yfir vötnun- um. Þeir Jón Óskar og Sigfús Daðason þýddu báðir ljóð eftir risann Saint-John Perse án þess að áhrifa þaðan gæti í verkum þeirra. En í broti úr 3. þætti ljóðaflokksins Vinda eftir Perse í þýðingu Jóns koma þó fyrir nokkrar setningar sem gætu kannski verið yfirskrift að öllu höfundarverki þýðandans: „En það er um manninn sjálfan að tefla! Og hvenær verður um sjálfan manninn fjallað? - Mun einhver jarðarbúi upphefja raust sína? Því það er um manninn að ræða í mannlegri hérvist sinni“. Jón Óskar bjó oft við fremur þröngan hag og var ekki heilsuhraustur, fékk lítið greitt fyrir verk sín og hafði ekki tryggan útgefanda. Hann var vandvirk- ur nákvæmnismaður og m.a. þessvegna merkilegt hve miklu verki hann skil- aði. Þótt hann hafi mörgum fremur kynnt sér strauma tímans ánetjaðist hann þeim ekki, afneitaði tilvistarstefnunni er reynt var að troða henni uppá hann, en játaði sig sósíalista. Þó er það í ljósi tilvistarstefnunnar sem hann rís að lokum sem miklu stærri höfundur en margir fást tilað viðurkenna. Hann 62 www.mm.is TMM 1999:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.