Gerðir kirkjuþings - 1986, Blaðsíða 143
135
lagi og geri grein fyrir lánsfjárþörf sinni jafnframt því
aó þeir sendi ársreikninga fyrir lióið ár. I reynd táknar
þetta, aó reikningar og lánsumsóknir þurfa aó vera komnir
til biskupsembættisins eigi síóar en í aprílmánuói ár
hvert.
í greinargeró þessari veróur ekki gerð sérstaklega grein
fyrir efni einstakra greina eins og venja er, þegar
frumvörp eru lögó fyrir Alþingi. Veróur aó gera ráó fyrir
því, aó Kirkjumálaráóuneytió annist þaó verk, ef
kirkjumálaráóherra ákveóur aó beita sér fyrir málinu. Þó
skal hér aðeins vikió aó ákvæðum 5. gr. Gert er ráó fyrir
aó lán úr kirkjubyggingasjóói megi nema allt aó 2/5 hlutum
af framkvæmdakostnaói eóa áhvílandi lánum. Þetta ákvæói
táknar ekki þaó, aó lán geti numió þessum hundraðshluta
samkvæmt fyrstu lánsumsókn. Sjóósstjórn hlýtur aó meta
árlega fjárþörf á áætluóum byggingartíma eða lánstima og
dreifa láni sem hún vill veita, á þau ár.
Vakin skal athygli á oróalaginu "allt aó 2/5 hlutum".
Þótt heimild sé til aó veita lán, sem gæti numió 2/5
hlutum kostnaóar eóa samanlagóra skulda hlýtur ákvöróun um
lánsfjárhæó aó taka mió af fjárhagsgetu sjóósins og e.t.v.
öórum atrióum.
Eins og kunnugt er er byggingartími kirkna oftast langur,
mörg ár, jafnvel áratugir. Þess vegna er nauósynlegt, aó
sjá til þess, aó söfnuóir þurfi ekki aó hefja greióslur
afborgana og vaxta á byggingartíma. Hins vegar veróur aó
telja söfnuóum vorkunnar1ítió aó standa skil á svo
hagstæóum lánum sem hér er gert ráó fyrir eftir aó
framkvæmdum er lokió. Ein af þeim leióum, sem þá blasa
vió, er hækkun á sóknargjaldi, sem heimiluó er samkvæmt 3.
gr. laga nr. 80/1985 um sóknargjöld. Þá heimild veróur aó
sjálfssögóu aó nota meó varúó.
Aó lokum skal vakin athygli á eftirfarandi:
1. Þegar lögin um Kirkjubyggingasjóó voru fyrst sett
1954, hefir Alþingi og þeir forsvarsmenn kirkjunnar
sem þá voru, ekki gert sér grein fyrir vaxandi
fjárþörf til nýsmiói kirkna og endurbóta á eldri
kirkjum. Þessa viróist hafa gætt, er gildandi lög
frá 1981 voru sett.
2. Framlögin samkvæmt núgildandi lögum eru ófulInægjandi
vegna þess aó fólki hefir fjölgað mjög ört i
þéttbýli. Þar meó hefir þörf fyrir kirkjur og
safnaóarheimi1i stóraukist.
3. Lögó er áhersla á, aó ríkissjóóur leggi aukið fé til
þessara framkvæmda og numin sé úr lögum sú takmörkun
í gildandi lögum, sem fjárveitingavaldió viróist nú
skírskota til.
4. Lagt er til, að söfnuóir séu ekki krafóir um greiðslu
afborgana og vaxta, meóan á byggingartíma stendur.