Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2011, Side 106
106
andspænis karlmönnum væri álíka og virði náttúrunnar gagnvart menn-
ingunni. „Konan“, sagði Ortner, „virðist vera tákn um eitthvað sem hvert
menningarsamfélag álítur lítils virði, tákn einhvers sem hvert menningar-
samfélag telur vera á lægra stigi tilverunnar en það sjálft.“ Náttúran aftur
á móti, samkvæmt skilningi Ortner, er það sem hvert menningarsamfélag
telur sig ekki aðeins aðskilið frá, heldur einnig æðra.23
Grein Ortner um tengsl náttúrunnar og kvenna hafði mikil áhrif á alla
vistfemíníska umræðu á 8. áratug síðustu aldar.24 Gott dæmi um grósku
femínískra fræða um þetta efni er bókin The Death of Nature: Women,
Ecology and the Scientific Revolution eftir vísindasagnfræðinginn Carolyn
Merchant frá árinu 1980.25 Merchant bar saman orðfæri ýmissa forkólfa
evrópsku iðnbyltingarinnar á 17. öld og þess tungutaks sem notað var til
að lýsa nornum á svipuðum tíma. Í stað hugmyndarinnar um jörðina sem
hina gjöfulu móður, sem svo mjög setti svip sinn á náttúruskilning miðalda
var farið að líkja náttúrunni við hóru og norn sem oftar en ekki verðskuld-
aði illa meðferð.26
Þegar litið er til hinnar fjölskrúðugu vistfræðilegu femínísku umræðu á
8. áratug síðustu aldar um tengsl samfélagslegrar og menningarlegrar kúg-
unar kvenna annars vegar og kúgunar náttúrunnar hins vegar þarf ekki að
koma á óvart að eitt fyrsta málefnið sem femínískir guðfræðingar létu sig
varða á vettvangi guðfræðinnar skyldi tengjast því mikilvæga málefni. Lítil
sem engin umræða var þá til staðar innan guðfræðinnar um þann mála-
23 Sherry B. Ortner, „is Female to Male as Nature is to Culture?“, bls. 72. Í þessu
samhengi má benda á að femínísk guðfræði hefur frá upphafi lagt áherslu á að
guðfræðileg iðkun sé vinna við táknræna sköpun merkingar. Þannig hafi guðfræði
eins og önnur hugvísindi áhrif á að skapa, endurskapa, umbylta eða þá viðhalda
formgerðum af trúarlegum, félagslegum og menningarlegum toga. Í samhengi guð-
fræðinnar sé það deginum ljósara að hinn táknræni heimur hafi verið gegnsýrður
karllægum táknum. Þetta megi glöggt sjá í trúarlegu og guðfræðilegu málfari.
24 Kenningar Sherry B. Ortner voru síðar harðlega gagnrýndar fyrir of mikla einföld-
un og voru sagðar vera of alhæfandi og byggjast um of á vestrænum skýringarlíkön-
um.
25 Carolyn Merchant, „is Female to Male as Nature is to Culture?“, The Death of
Nature: Women, Ecology and the Scientific Revolution, New york: HarperCollins
Publishers, 1980.
26 Á miðöldum, einkum frá fimmtándu öld og fram á þá sautjándu voru í Evrópu þús-
undir manna dæmdar til fangelsis eða til dauða fyrir að vera nornir eða galdramenn.
Langstærstur hluti þessa fólks var konur. Sjá nánar um tengsl kvenhaturs og
nornaveiðanna í Evrópu í bók Marianne Hester, Lewd Women & Wicked Witches.
A Study of the Dynamics of Male Domination, London & New york: Routledge,
1992.
SólveiG AnnA BóASdóttiR