Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2011, Page 183
183
öðruvísi, ef ekki væri vegna leyndarmáls sem liggur á honum eins og mara.
Þetta leyndarmál sem hann opinberar í fyllingu tímans í skáldsögu sinni
snertir hlutverkið sem afi hans leikur í samvinnu/samsæri franska ríkisins
og þýskra yfirvalda í seinni heimsstyrjöld. Athæfið var á allra vitorði í fjöl-
skyldu rithöfundarins en menn forðuðust að minnast á vafasaman forföður
og með því upphófst hálfgert leynimakk. Í rauninni,
er leyndarmálið ekki aðeins það sem einhverjum viðkomandi er ekki
sagt um atburði eða gerðir heldur það sem ekki er hægt að segja
utan fjölskyldunnar en sem hlutaðeigandi hefur verið sagt. Það
nægir ef til vill að ekki hafi verið talað um hina ósegjanlegu atburði,
á ákveðinni stundu, til að þeir taki á sig mynd leyndarmáls sem síðan
íþyngir viðkomandi alla ævi þótt hann hafi lengi vitað um leyndar-
málið innra með sér.9
Til að skoða þetta í réttu ljósi, er nauðsynlegt að vita að móðir rithöfund-
arins, Hélène Carrère d’Encausse, er þekkt og virt persóna í Frakklandi.
Hún er æviráðinn ritari Frönsku akademíunnar (l’Académie Française),
einnar elstu menningarstofnunar landsins. Stofnunin hefur meðal ann-
ars umsjón með franskri orðabók en í henni eru lagðar línurnar varðandi
notkun franskrar tungu. Í ferilskrá hennar, á heimasíðu frönsku akademí-
unnar, kemur fram að hún er
fædd í París, inn í fjölskyldu heimsborgara sem í kjölfar rússnesku
byltingarinnar tvístraðist um gervalla Evrópu. Meðal skyldmenna og
forfeðra er að finna háttsetta embættismenn rússneska keisaraveld-
isins en einnig andstæðinga sama veldis, forseta vísindaakademíunn-
ar, þegar Katarína ii. var við öld, auk þriggja konungsmorðingja.
Þessi arfleifð hvatti Hélène til að leggja stund á mannkynssögu og
stjórnmálafræði sem hún svo kenndi í Sorbonne þar til hún söðlaði
um og tók við prófessorsstöðu við stofnun stjórnmálafræðirann-
sókna í París; flökkueðlið í genunum hefur eflaust ýtt þar undir.10
9 Sjá Catherine Bonnigue í Inconscient et secrets de famille: http://www.cairn.info/
revue-le-coq-heron-2002-2-page-37 [sótt 5. september 2009].
10 Vefsvæði Frönsku akademíunnar, L’Académie Française: http://www.academie-
francaise.fr/immortels/index.html [sótt 9. september 2009].
LEyNDARMÁL EMMANUELS CARRèRE AFHJúPUÐ