Peningamál - 01.07.2006, Page 5
I Yfirlit þjóðhags- og verðbólguspár
Breytt framsetning þjóðhags- og verðbólguspár
Þjóðhags- og verðbólguspá Seðlabankans er með breyttu sniði í þessu
hefti Peningamála. Fram til þessa hefur megináherslan verið á spá,
sem byggðist á því að stýrivextir héldust óbreyttir út spátímabilið og
að gengisvísitala krónunnar breyttist ekki frá spádegi. Nú er megin-
áherslan hins vegar á spá sem byggist á vaxtaferli sem endurspeglar
væntingar markaðs- og greiningaraðila um þróun stýrivaxta á næstu
misserum. Gengi krónunnar er spáð með þjóðhagslíkani bankans eins
og öðrum hagstærðum. Þessi spá kallast nú grunnspá.
Birtar eru tvær fráviksspár. Í hinni fyrri er gert ráð fyrir óbreyttum
stýrivöxtum út spátímabilið. Hún er því sambærileg við þá spá sem
áður var kölluð grunnspá, nema að því leyti að gengi krónunnar er ekki
haldið föstu á spátímanum heldur er því spáð út frá samspili óvarins
vaxtajafnvægis og fráviki frá kaupmáttarjafnvægi. Seinni fráviksspáin er
sambærileg við spá sem Seðlabankinn birti í síðasta hefti Peningamála
en í henni er gert ráð fyrir að bankinn fylgi peningastefnureglu sem
tryggir að verðbólgumarkmiðinu verði náð á spátímabilinu.
Tilgangurinn með því að birta þrjá verðbólguferla er meðal ann-
ars að draga úr áherslu á einstaka ferla, en slíkt endurspeglar betur þá
óvissu sem óhjákvæmilega ríkir um efnahagsframvinduna, sérstaklega
við núverandi aðstæður. Raunsæi og innra samræmi grunnspár ætti
jafnframt að batna þegar ekki er lengur byggt á að stýrivextir og
gengi krónunnar séu óbreytt út spátímabilið. Nánar er fjallað um
breytta framsetningu á spám og rökin fyrir henni í rammagrein VIII-3.
Þróun og horfur í efnahags- og peningamálum1
Verðbólguhorfur versna sakir gengislækkunar
og vaxandi launakostnaðar
Verðbólguhorfur hafa versnað mikið frá því að Peningamál komu út hinn 30. mars sl. Það má rekja til þess að
gengi krónunnar lækkaði á sama tíma og innlend eftirspurn jókst hratt og vaxandi spennu gætti á vinnumark-
aði. Þótt gengisaðlögunin hafi verið óhjákvæmileg og gengi krónunnar sé nú nokkurn veginn í samræmi við
langtímajafnvægi í gengismálum hófst hún fyrr og var hraðari en æskilegt er frá sjónarhóli verðbólgumarkmiðs-
ins. Verðbólguáhrif gengisbreytingarinnar hafa þó aðeins komið fram að hluta og gætu komið hraðar fram ef
gengi krónunnar lækkar frekar. Samkomulag sem nú hefur verið gert um hækkun launa umfram það sem samið
var um árið 2004, ýtir enn frekar undir verðbólguþrýstinginn við núverandi skilyrði. Þótt nokkur teikn séu á lofti
um að draga muni úr vexti eftirspurnar á næstunni er enn ekki unnt að fullyrða að veruleg þáttaskil hafi orðið.
Ójafnvægi í þjóðarbúskapnum er það mikið að líklega er óhjákvæmilegt að eftirspurn dragist verulega saman
áður en jafnvægi næst á ný. Aðhaldssamari peningastefna gæti flýtt aðlöguninni og þannig gert hana mildari
til langs tíma litið. Auknar verðbólguvæntingar og gengislækkun hafa að undanförnu dregið úr aðhaldsáhrifum
stýrivaxta. Jafnvel þótt stýrivextir hækki í takt við væntingar markaðs- og greiningaraðila eru hverfandi líkur á
að verðbólgumarkmið náist innan tveggja ára. Með umtalsverðri hækkun stýrivaxta eru hins vegar horfur á að
verðbólgumarkmiðið geti náðst innan ásættanlegs tíma.
1. Í þessari grein eru notaðar upplýsingar sem fyrir lágu 30. júní 2006, en spár byggjast á
upplýsingum til 19. júní.