Peningamál - 01.07.2006, Síða 65
F JÁRMÁLAMARKAÐIR
OG AÐGERÐIR SEÐLABANKANS
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
2
65
ríkisbréf til tveggja ára, auk þess sem útgáfa þriggja mánaða ríkisvíxla
á mánaðar fresti var endurvakin. Þetta mun í fyllingu tímans þýða að
til verður nokkuð samfelldur vaxtaferill sem nær til tveggja ára. Hver
flokkur tveggja ára ríkisbréfa mun verða u.þ.b. 15 ma.kr. og verða
þeir byggðir upp í þá stærð í þremur útboðum. Vonast er til að sú
fjárhæð nægi til að verðmyndun verði trúverðug. Það sem styður við
þá von er hversu margir flokkarnir verða og hve stutt er á milli þeirra.
Á endanum verða um 60 ma.kr. í flokkum til tveggja ára og skemur.
Þar að auki býður Lánasýsla ríkisins upp á verðbréfalán til aðalmiðlara
þannig að heildarmarkaðsvirði hvers flokks gæti orðið 25 ma.kr. ef
allir aðalmiðlarar nýta sér lánamöguleika til fulls. Fyrsta útboð tveggja
ára ríkisbréfa fór fram 14. júní og bárust tilboð fyrir 14 ma.kr. Tekið
var tilboðum í 5 ma.kr. auk þess sem aðalmiðlarar gátu bætt við 10%
til viðbótar sínum tilboðum á meðalávöxtunarkröfu útboðsins, en
hún var 11,6%. Heildarniðurstaðan var því 5,424 ma.kr. Hinn 30.
maí endurnýjaði Lánasýslan aðalmiðlarasamninga sína og eru 5 aðilar
aðalmiðlarar með ríkisbréf. Jafnframt var RIKB 07 0209 settur í við-
skiptavakt á ný en henni hafði verið hætt fyrir nokkru.
Mikil endurhverf viðskipti
Rúm lausafjárstaða ríkissjóðs ásamt bindiskyldu veldur því m.a. að mikil
þörf er fyrir lánafyrirgreiðslu Seðlabankans. Endurhverf viðskipti hafa í
nokkur skipti verið yfir 100 ma.kr. og 20. júní námu þau rúmlega 110
ma.kr. sem er hæsta staða frá upphafi. Stöðu endurhverfra lána má sjá
á mynd 6. Meðalstaða ríkissjóðs á viðskiptareikningi í Seðlabankanum
hefur legið nærri 40 ma.kr. en þar að auki á ríkissjóður um 32 ma.kr. á
bundnum reikningum í bankanum. Bindiskylda hefur vaxið talsvert á
árinu eða um rúmlega 36%. Helsta ástæða þessarar aukningar virðist
vera vöxtur erlendra innlána hjá innlánsstofnunum. Álögð bindiskylda
í júní nam 24,6 ma.kr.
Krónuviðskipti hafa dregist saman
Viðskipti á millibankamarkaði fyrir lán í krónum það sem af er
ári eru heldur minni en á sama tíma fyrir ári og munar um 13%.
Heildarviðskiptin námu 691 ma.kr. Viðskipti á millibankamarkaði með
gjaldeyrisskiptasamninga (swap-markaði) eru lítil, einungis 19 ma.kr.
það sem af er þessu ári. Daglán hafa verið fremur fátíð á árinu en þó
hafa verið veittir tæplega 40 ma.kr. það sem af er þessu ári, samanbor-
ið við 2 ma.kr. fyrir ári. Af þessum 40 ma.kr. var 21 ma.kr. daglán
veitt á einum degi, hinn 16. júní en ástæða þess mun vera vanmat á
lánsfjárþörf hjá einni bankastofnun. Meðalfjárhæð innstæðubréfa á
árinu er um 1,4 ma.kr. á viku, samanborið við 4,8 ma.kr. á sama tíma
á fyrra ári.
Ávöxtun íbúðabréfa sveiflaðist talsvert
Talsvert stefnuleysi hefur einkennt þróun ávöxtunar íbúðabréfa í
Kauphöll Íslands eins og sjá má á mynd 7. Ekki er loku fyrir það skotið
að stefnuleysið endurspegli þá umræðu sem verið hefur um framtíð
Íbúðalánasjóðs, auk þess sem Standard & Poor’s staðfesti í júní að
sjóðurinn væri á athugunarlista og að horfur væru áfram metnar
neikvæðar og hugsanlegt væri að lánshæfiseinkunn yrði lækkuð.
0
20
40
60
80
100
120
júnímaíaprílmarsfeb.jan.
Mynd 6
Staða endurhverfra viðskipta Seðlabankans
Vikulegar tölur 3. janúar 2006 - 20. júní 2006
Ma.kr.
Heimild: Seðlabanki Íslands.
3,5
4,0
4,5
5,0
júnímaíaprílmarsfeb.jan.
HFF 150644
HFF 150634
HFF 150224
HFF 150914
Mynd 7
Raunávöxtun íbúðabréfa
Daglegar tölur 3. janúar 2006 - 23. júní 2006
%
Heimild: Seðlabanki Íslands.