Peningamál - 01.07.2006, Page 81
UM ÚTRE IKNING Á
GJALDMIÐLAVOGUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
2
81
Svíþjóð
Frá því að sænska krónan var sett á fl ot 19. nóvember 1992 hefur
gjaldmiðlavog sænsku krónunnar (TCW) ekki verið uppfærð. Í gengis -
vísitölunni er 21 land með tíu gjaldmiðlum og er vægi þeirra reiknað út
frá landaskiptingu vöruviðskipta, þ.e.a.s. út- og innfl utnings. Tekið er
tillit til þriðjulandaáhrifa. Vogin var upphafl ega gerð af Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum á grundvelli upplýsinga um utanríkisviðskipti frá árunum
1989-1991.
Bretland
Breski seðlabankinn gerði nýlega umtalsverðar breytingar á útreikn-
ingi bresku gengisvísitölunnar (ERI) þar sem hún endurspeglaði ekki
vaxandi viðskipti við Asíuríki og aukin þjónustuviðskipti á tíunda ára-
tugnum. Áður var stuðst við vogir frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem
reiknuð var út frá vöruviðskiptum á árunum 1989-1991. Gjaldmiðlum
í voginni var fjölgað úr 6 í 15 og í nýju voginni er tekið mið af þjón-
ustuviðskiptum. Vægi og val á gjaldmiðlum er endurskoðað árlega.
Gjaldmiðill er tekinn með í vísitöluna ef vöruviðskipti viðkomandi
lands nema a.m.k. 1% af heildarviðskiptum síðastliðinna þriggja ára.
Sú gengisvísitala samanstendur að mestu leyti af löndum með svip-
aða verðbólgu og í Bretlandi. Á sama tíma var einnig farið að reikna
breiðari vísitölu þar sem lágmarkið er 0,5% af heildarviðskiptum. Breið
gengisvísitala hentar vel við að meta samkeppnisstöðu yfi r stutt tíma-
bil. Í henni er fjöldi tiltölulega óstöðugra gjaldmiðla þar sem verðbólga
eykst jafnan í kjölfar gengislækkunar. Því þarf að leiðrétta fyrir verð-
breytingum, þ.e.a.s. reikna raungengi, til að leggja mat á þróun sam-
keppnisstöðu yfi r lengri tímabil.8
Bandaríkin
Frá árinu 1971 fram til loka ársins 1998 miðaði bandaríski seðlabank-
inn einkum við svokallaða G-10-gengisvísitölu sem samanstóð af
gjaldmiðlum G-10-landanna. Vogin var endurskoðuð þegar evran
kom í stað fi mm gjaldmiðla í voginni auk þess sem alþjóðaviðskipti
Bandaríkjanna höfðu breyst töluvert árin á undan (Leahy 1998). Í stað
G-10-vogarinnar komu þrjár vísitölur: breið gengisvísitala (e. broad in-
dex), undirvísitala helstu gjaldmiðla (e. major currency index) og undir -
vísitala annarra mikilvægra viðskiptaþjóða (e. other important trading
partner index). Í Bandaríkjunum er tekið tillit til þriðjulandaáhrifa og val
og vægi gjaldmiðla endurskoðað árlega.
Breiða gengisvísitalan (e. broad index) samanstendur af öllum
gjaldmiðlum sem hafa að lágmarki 0,5% vægi í vöruinnfl utningi eða
–útfl utningi og ekki er tekið tillit til þjónustuviðskipta. Val og vægi
gjaldmiðla í voginni er endurskoðað árlega.
Vísitölu helstu gjaldmiðla er ætlað að þjóna svipuðum tilgangi
og G-10-vísitalan. Litið er svo á að hún mæli ekki einungis samkeppn-
ishæfni bandarískrar vöru í samanburði við vörur helstu iðnríkja held-
ur einnig að hún sé mælikvarði á fjármálalegan þrýsting (e. fi nancial
pressures) á Bandaríkjadal. Hún samanstendur því einungis af gjald-
8. Sjá nánari útlistun í Lynch og Whitaker (2004).