Þjóðmál - 01.09.2009, Blaðsíða 49
Þjóðmál HAUST 2009 47
Asía er bæði langstærst og lang fjöl-mennust heimsálfanna, nær yfir 33%
landrýmis jarðar og í álfunni búa meira en
60% mannkyns . Í einungis tveimur lönd-
um þessarar víðfeðmu álfu, Kína og Ind-
landi, búa 40 af hverjum hundrað jarðar-
búum . Hagfræðiprófessorinn heimskunni
Jeffrey D . Sachs hefur spáð því að innan
aldarfjórðungs verði hagkerfi Kína orðið
stærra en Bandaríkjanna – og um miðja
öldina hugsanlega helmingi stærra .
Það er því ekki út í bláinn að líta stund-
ar korn á Kína og það sem þar hefur verið
að gerast .
Fjarlægir atburðir
skipta Ísland máli
Viðhorf sumra til Kína mótast nú á dögum
ennþá töluvert af valdatöku kommúnista í
landinu árið 1949 – og þátttöku Kínverja
í Kóreustríðinu fyrir hálfri öld . Þetta voru
grafalvarlegir atburðir, merki um yfirgangs-
og útþenslustefnu heimskommúnismans,
sem vestræn ríki snerust gegn með stofnun
Atlantshafsbandalagsins vorið 1949 . Þó að
Kóreu-stríðið væri háð svo langt í burtu, er
áhugavert að minnast þess, að það var eitt
skýrasta merkið um það ótrygga heims-
ástand sem vísað var til, þegar varnarsamn-
ingur Íslands og Bandaríkjanna var gerður
1951 – og var forsenda þess að bandarískt
varn ar lið kom aftur til landsins .
Eðlilegt er að hugleiðingar vestrænna
manna um Kína snúist kannske fyrst um það
að hve miklu leyti eða hvort ennþá eimi eftir
af því Kína sem þarna birtist – eða hvort líta
megi landið í nýju og þá viðfelldnara ljósi .
Mikilvægt er að matið sé raunhæft .
Kína hefur bæði breyst og ekki breyst!
Breytingarnar í Kína
Stærsta skref til breytinga spratt af valda töku
Deng Xiaoping, þess er kom í kjölfar Maós
formanns undir lok 8 . áratugarins . Opn-
unarstefnan, sem Deng beitti sér fyrir, hefur
reynst afar farsæl, breytt mjög miklu og
sannast sagna skilað ævintýralegum árangri .
Stefna Dengs kristallast í þeirri fleygu stað-
hæfingu hans að – það sé sama hvort kött-
urinn sé hvítur eða svartur bara ef hann veiði
mýs! Þarna er í hnotskurn sú stefna sem ráð-
ið hefur stjórnarfari Kína í sívaxandi mæli .
Að halda sig að því er best reynist .
Áfram er við hátíðleg tækifæri talað um
Marx og Lenin, styttur Maós standa og
kínverska stjórnarskráin kveður á um að
Ólafur Egilsson
Kína sækir fram