Þjóðmál - 01.09.2009, Blaðsíða 28
26 Þjóðmál HAUST 2009
myndunarviðræður við Sam fylk ing una .
Hann fékk samþykktan texta á lands f undi
sem mætti lesa, væri maður and skot inn
með biblíu í hendi, þannig að það sé allt
í lagi að hefja undirbúning að inn göngu
Íslands í Evrópusambandið . Í fram haldi
sendi formaðurinn þingmannsefni sín út
á meðal fólks með þau skilaboð að traust
væri lykilorðið . Vg væri treystandi . Sjálfur
stóð hann keikur að kveldi síðasta dags
kosningabaráttunnar og sagði Vg stefnu-
fastan flokk . Í tugþúsundavís voru kjósend-
ur blekktir . Þeim var talin trú um að Vg
stæði gegn aðild að Evrópu sambandinu .
Það heyrðist hljóð úr horni . Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifaði formanninum
opið bréf . Kjarninn í bréfinu er eftir-
farandi:
Hvernig má það vera að eftir allt sem
á undan er gengið og skýra stefnu
flokksins í þessum málaflokki ætlir
þú Steingrímur J . Sigfússon að styðja
frum varp um aðildarumsókn Ísland
að Evrópusambandinu? Ef ekki hafa
orðið sinnaskipti hjá þér þá hlýtur að
vera ætlan þín að flækjast fyrir málinu á
öðrum stigum málsins . Ef svo er ert þú
farinn að stunda þau klækjastjórnmál
sem að mínu viti var verið að berjast
gegn í búsáhaldabyltingunni og Vinstri-
hreyfingin grænt framboð hefur svo
oft fordæmt . Með því að segja já við
frumvarpi ríkisstjórnarinnar um aðildar-
umsókn að Evrópusambandinu þá gerir
þú þig að ómerkingi orða þinna en það
sem verra er, þá gerir þú mig og alla þá
sem börðust fyrir flokkinn í aðdraganda
síðustu kosninga að ómerkingum orða
sinna . Sjálfur fékk ég 50 manns til þess að
skrá sig í flokkinn fyrir síðustu kosningar
og það var klárt í mínum huga og í
orðræðum mínum við það fólk að aldrei
myndi flokkurinn taka þátt í því að færa
Ísland nær Evrópusambandinu .
Bréfinu lýkur Guðbergur Egill með svo-
felldum orðum:
Mín hollusta lýtur ekki að ákveðnum for-
ingja eða stjórnmálamönnum heldur lýt-
ur mín hollusta að Íslandi og engu öðru .
Ég hef rætt við marga innan hreyfingar-
innar og ekki enn fundið neinn sem er
sammála þeirri leið sem þú og meiri hluti
þingmanna okkar ætlar að fara . Hér að
neðan skrifa einnig undir bréfið nokkrir
af félögum okkar úr norðausturkjördæmi
til þess að þú vonandi skynjir hug félaga
þinna og kjósenda sem á engan hátt skildu
þig á þann veg í aðdraganda kosninganna
að þú myndir segja já við aðildarumsókn
Íslands að Evrópusambandinu . Þú varst
ekki kosinn á Alþingi Íslendinga af kjós-
endum Vinstrihreyfingarinnar græns
fram boðs til þess að samþykkja þesslags
frum varp .
Kveðja,
Guðbergur Egill Eyjólfsson,
flokksbundinn Vinstri grænn
Umsóknin fór til Brussel daginn sem hún var samþykkt á Alþingi, 16 . júlí,
með 33 atkvæðum á móti 28 en tveir sátu
hjá . Sumir þingmenn Vg gerðu grein fyrir
atkvæðum sínum . Álfheiður Ingadóttir
og Svandís Svavarsdóttir gáfu atkvæði sitt
tillögunni en sögðust á móti inngöngu
engu að síður .
Forysta Vg og formaðurinn sérstaklega
veðjar á að sérstakar kringumstæður eftir
hrun gefi svigrúm til að fórna kjarnanum í
stefnu flokksins fyrir ríkisstjórnarþátttöku .
Það er djarft veðmál .