Þjóðmál - 01.09.2009, Blaðsíða 31
Þjóðmál HAUST 2009 29
ólánssama forstjóra og stjórnarformann
FL-Group . Er það gert með því að vísa til
stutt ara legrar umfjöllunar Jóns um verð-
bréfa fyrirtækið Burnham International
á Íslandi, en þar sátu Hannes og Bjarni í
stjórn, allt til þess tíma er fyrirtækið fór á
haus inn . Jón og Þorvaldur hafa þó ekki fyrir
því að nefna að fyrirtækið hafi keyrt í þrot,
heldur er því aðeins haldið til haga að það
hafi „misst starfsleyfið .“ Finnst þeim þar
engu skipta að starfsleyfið var afturkallað af
þeirri einföldu ástæðu að fyrirtækið lenti í
rekstrarerfiðleikum og eiginfjárhlutfall þess
fór undir þær lágmarkskröfur sem gerðar
eru til slíkra fyrirtækja . Ætlar Þorvaldur að
halda því fram að það sé í sjálfu sér glæpsam-
legt, eða vafasamt, að hafa setið í stjórn félags
sem lendir í erfiðleikum vegna aðstæðna á
markaði? Umfjöllun Þorvaldar um þessa
bók snýr nær eingöngu að umfjöllun Jóns
um fyrrnefnt félag (bls . 18) en tekur í engu
á öðrum þeim atriðum í bókinni sem þó
má telja mun áhugaverðari . Hví skyldi það
vera? Ætli það sé vegna þess að þar sé best
hægt að koma höggi á flokkinn og þá menn
sem Þorvaldi er mest í nöp við?
Gjallarhorn útrásarinnar
Þorvaldur fjallar í nokkrum orðum um bók Þorkels Sigurlaugssonar sem
út kom hjá Bókafélaginu Uglu snemma
sumars og segir hana vera „af öðrum toga af
kápunni að dæma“ en hinar bækurnar sem
hann fjallar um . Það er rétt hjá Þorvaldi
en hann hafði reyndar aðeins kápuna til
að dæma um það því hann viðurkennir
sjálfur að hafa ekki lesið umfjöllunarefni
sitt . Maður veltir því fyrir sér hvers vegna
hann ákveður að gera hana að sérstöku
umfjöllunarefni í grein sinni . Það skýrist
hins vegar í setningunni sem á eftir fylgir
því þar segir hann með smekklausum
hætti, og vísar þar til höfundar: „þar fjallar
eitt hvellasta gjallarhorn útrásarinnar
um endurreisn efnahagslífsins og bætt
viðskiptasiðferði“ .
Mörgum hefur blöskrað hvernig Þorvald-
ur vegur þarna að Þorkatli, enda hefur sá
síðarnefndi aldrei talað með þeim hætti
að hann verðskuldi nafngiftina „hvellasta
gjallarhorn útrásarinnar“ . Enda kemur í
ljós að Þorvaldur rökstyður í engu þessar
dylgjur sínar . Það verður svo reyndar að
teljast nokkuð skondið að hann skuli velja
þeim manni þetta viðurnefni, sem einmitt
vék úr starfi hjá rótgrónasta fjárfestinga fé lagi
landsins þegar það var tekið yfir af helstu
útrásarvíkingum þjóðarinnar . Þorvaldi er
í raun ekki stætt á öðru en að skýra þessi
ummæli sín betur, ella biðjast afsök unar á
því sem hann hefur sagt í þessa veru!
Þá hefði Þorvaldur eflaust haft gott af því
að lesa bók Þorkels, enda er hún af mörgum
Fleirum en greinarhöfundi blöskruðu skrif Þorvalds Gylfasonar um bók Þorkels
Sigurlaugssonar, Ný framtíðarsýn . Margeir Pétursson tók m .a . upp hanskann fyrir
Þorkel í grein í Fréttablaðinu .