Þjóðmál - 01.09.2009, Blaðsíða 55
Þjóðmál HAUST 2009 53
Í apríl 2009 samdi Fjármálaráðuneytið við Sjónarrönd ehf . um að framkvæma mat
á afrakstri orkusölu til erlendrar stór iðju
fyrir íslenska þjóðarbúið,“ segir í frétta til-
kynningu Fjármálaráðuneytis nr . 53/2009,
dagsettri 28 . júlí 2009 .*
Það er með endemum, að á meðan Ísland
var enn á leið niður í öldudal verstu heims-
kreppu í 80 ár vegna hruns fjármálakerfis
heimsins, skuli fjármálaráðherrann, Stein-
grímur Jóhann Sigfússon, telja nauð synlegt
að verja takmörkuðum fjármunum ríkis-
sjóðs til að slá stoðum undir gamla og vel
þekkta skoðun sjálfs sín um þjóðhag slega
óhagkvæmni virkjana til stóriðju og er-
lendra fjárfestinga í stóriðju á Íslandi .
Til verksins valdi hann hvorki meira
né minna en 4 hagfræðinga, sem flestir
eru þekktir af gagnrýni sinni á virkjanir
fyrir stóriðju og á stóriðjuna sjálfa . Á tím-
um bréfahagkerfisins, þar sem sumir
höfundanna gagndu áberandi hlutverkum
í fjármálageiranum, hlaut þessi gagnrýni
töluverðan hljómgrunn . Það er hins vegar
torskiljanlegt, hvernig fjármálaráðherra og
téðum fjórmenningum dettur í hug að bera
á borð þessar lummur á tímum fjársveltis
atvinnulífsins og fjöldaatvinnuleysis .
Hagfræðingarnir gera sig seka um að beita tölfræði með vafasömum hætti .
Þeir nota hvorki sömu tímabil né jafn löng
við samanburð . Þegar borinn er sam an
innlendur og erlendur orkuiðnaður, eru
bornar saman ósambærilegar stærðir . Hag -
fræð ingarnir ættu að vita, að við sam an burð
á arðsemi orkufyrirtækja verður að taka
tillit til eðlis orkusamninga við kom andi
fyrirtækja . Yfir 70% íslenzkrar raforku-
vinnslu fara til stóriðnaðar, en í Evrópu
og í Bandaríkjunum er þetta hlutfall undir
fjórðungi . Orkusala íslenzkra orku vinnslu -
fyrirtækja er þess vegna háð mun minni
markaðsóvissu, og þar af leiðandi get ur
ávöxtunarkrafan verið lægri en erlendis .
Þar að auki eru vatnsorkuverin, sem mynda
Bjarni Jónsson
Áróðursplagg – og
misnotkun á skattfé
____________
* Mat á arðsemi orkusölu til stóriðju: Fyrsta áfangaskýrsla .
Sjónarrönd ehf . fyrir Fjár mála ráðuneytið 29 . maí 2009 .
Höfundar: Þorsteinn Siglaugsson, hagfræðingur, dr .
Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur, dr . Ásgeir Jónsson,
lektor við Háskóla Íslands, og dr . Ragnar Árnason,
prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands .