Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Side 41

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Side 41
41 vígslubiskups í Skálholti, um hugmyndir um miðaldadómkirkju í Skálholti, sem upphaflega voru kynntar kirkjuráði þann 3. ágúst 2011. Á fundi kirkjuráðs þann 21. og 22. febrúar 2012 var samþykkt að aflað yrði allra nauðsynlegra upplýsinga s.s. um áhrif á Skálholt og umhverfi þar, fjármögnun og rekstur og áhættu sem verkefnið kynni að fela í sér fyrir kirkjuna, svo ráðinu væri unnt að taka afstöðu til málaleitunar forsvarsmanna verkefnisins. Kirkjuráð samþykkti eftirfarandi: 1. Kirkjuráð gangi til samstarfs um endurreisn miðaldadómkirkju í Skálholti, enda verði unnt að staðsetja hana þannig að vel fari. 2. Unnið verði deiliskipulag fyrir Skálholt þar sem m.a verði gert ráð fyrir miðaldadómkirkju. 3. Gengið verði til samninga við forsvarsmenn verkefnisins um: Athugun á sameiginlegum rekstri miðaldadómkirkju og veraldlegri starfsemi í Skál holti og tillögur um skipan þeirra mála Undirbúningsvinnu vegna staðarvals fyrir miðalda- dómkirkju Myndun sjálfseignarstofnunar um eignarhald miðaldadómkirkju Forsendur rekstrarsamnings við væntanlegt rekstrarfélag Samkomulag um framvindu verkefnisins, kynningu og annað er snertir sameiginlega hagsmuni Skálholts og miðaldadómkirkju. 4. Skilyrt verði að vandaðar kostnaðaráætlanir frá fyrirsvarsmönnum verkefnisins liggi fyrir svo og full fjármögnun stofnkostnaðar og rekstrar áður en samþykkt verður að fara í verklegar framkvæmdir. 5. Kirkjan taki ekki fjárhagslega þátt í verkefninu og beri ekki áhættu af því að öðru leyti en því að kosta gerð deiliskipulags. Samþykkt var að af hálfu kirkjunnar starfi áfram með vígslubiskupi Skálholtsumdæmis og framkvæmdastjóra kirkjuráðs að þessum undirbúningi formaður fasteignanefndar þjóðkirkjunnar Bjarni Kr. Grímsson og Ásbjörn Jónsson, kirkjuráðsmaður.“ Á fundi kirkjuráðs í maí 2012 var síðan eftirfarandi bókað: „Framkvæmdastjóri og vígslubiskup gerðu grein fyrir fundi með forsvarsmönnum verkefnis um Miðaldadómkirkju í Skálholti, sem haldinn var 22. maí 2012. Lögð var fram á kirkjuráðsfundinum og kynnt verkáætlun vegna næstu skrefa í vinnunni.“ Á fundi kirkjuráðs í september 2012 var lögð fram greinargerð vígslubiskups í Skálholts­ umdæmi þar sem farið er yfir stöðu mála og helstu málefni sem taka þarf ákvörðun um. Kirkjuráð samþykkti að vísa málinu til fjármálahóps. Fjármálahópurinn fjallaði um greinargerðina og var hún rædd á fundi kirkjuráðs í október mánuði 2012 og ákveðið að ræða hana nánar í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir Skálholt fyrir árið 2013. Málið var aftur til umræðu á fundi kirkjuráðs í desember mánuði 2012. Vígslubiskup í Skálholti kynnti þá helstu þætti starfseminnar í Skálholti og lagði fram yfirlit yfir brýnustu verkefni. Farið var yfir stöðu fjármála Skálholtsstaðar 2012 og fjárhagsáætlun 2013. Á kirkjuþingi 2012 var samþykkt svofelld þingsályktun: „Kirkjuþing 2012 ályktar að ekki verði horfið frá þeirri deiliskipulagsvinnu í Skálholti sem hafin er og telur að ekki beri að setja þeirri vinnu nein takmörk. Hins vegar brýnir kirkjuþing
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.