Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Blaðsíða 135
135
26. mál kirkjuþings 2013
Flutt af Steindóri Haraldssyni og Birgi Rafni Styrmissyni
Tillaga til þingsályktunar um
kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa
Kirkjuþing 2013 ályktar að nefnd sú sem kosin var á kirkjuþingi 2012 til að endurskoða
starfsreglur um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa starfi áfram og skili tillögum til
kirkjuþings að vori 2013.
Greinargerð.
Á 49. kirkjuþingi 2012 var kjörin nefnd til að endurskoða starfsreglur um kosningu
biskups Íslands og vígslubiskupa.
Í nefndina voru kjörin sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir,
og kirkjuþingsmennirnir Margrét Björnsdóttir, Pétur Björgvin Þorsteinsson og Steindór
Haraldsson. Pétur Björgvin lét af störfum og flutti utan á tímabilinu, í hans stað var kjörinn
Birgir Rafn Styrmisson kirkjuþingsmaður. Margrét Björnsdóttir sagði sig úr nefndinni í
októbermánuði 2013 og voru ekki tök á að kjósa annan fulltrúa í hennar stað.
Nefndin hefur ekki lokið við endurskoðun starfsreglnanna en leggur hér fram til umræðu
eftirfarandi fjóra meginþætti sem nefndin er sammála um að beri að hafa í huga við
endurskoðun starfsreglna um kjör biskups Íslands og vígslubiskupa:
1. Mikilvægi þess að tryggja gegnsæi og lýðræðislegt fyrirkomulag í biskupskosningum.
a) Semja þarf siðareglur um kosningar innan þjóðkirkjunnar
2. Jafna vægi atkvæða.
Tillögur um hvernig jafna megi atkvæðavægi
a) Binda ákveðinn fjölda kjörmanna við hvert prófastsdæmi.
Til er reiknilíkan (sjá fylgiskjal) til að velja á kirkjuþing sem gengur út frá núverandi
prófastsdæmaskipan. Þetta er reikniregla sem búið er að samþykkja.
b) Binda atkvæðafjölda við prestaköll. Meginregla: Eitt prestakall hefur eitt atkvæði
fyrir hvern starfandi prest. Að auki hefur hvert prestakall atkvæði leikmanns, hér
kallað „kjörmannaatkvæði“, sem fjölgar eftir stærð. Er þá miðað við fjölda sóknarbarna.
Ákveða þarf fjölda sóknarbarna á bak við hvern kjörmann. 2000, 3000 eða 4000
sóknarbörn (sjá fylgiskjal).
c) Halda núverandi kerfi, þ.e. að hver sókn hafi atkvæði, en fjölga í stærri sóknum.
3. Biskupskandidatar þurfi tilnefningu kjörmanna. Lagt er til að tilnefningin sé 5%
kjörmanna, þar af minnst 10 vígðir og 10 leikmenn.
a) Tryggja verður að biskupskandídatar hafi bakland í þjóðkirkjunni.
4. Nefndin leggur til að fjöldi kjörmanna verði um 600.
a) Með þessum fjölda kjörmanna ætti að vera tryggt að allir sóknarnefndarformenn
geti haldið nýfengnum kosningarétti sínum.
Málið var dregið til baka