Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 8
8 9
þjóðkirkjuna. Skýringin getur ekki alltaf verið sú að einhverjir séu svo andsnúnir kirkjunni
að þess vegna fari hún illa út úr umræðunni. Oft þannig að kirkjan hrökklist undan á flótta
í málum þar sem í raun engu hefur verið klúðrað, nema kannski umræðunni. Stundum
fara jafnvel starfsmenn kirkjunnar mikinn á slíkum stundum. Á þessu þurfum við að taka
fulla ábyrgð og í þessum efnum þurfum við að gera miklu betur. Málstaður kirkjunnar
er oftast góður og það er auðvitað einlægur vilji þeirra sem innan hennar starfa að gera
vel og gera rétt. Við þurfum hins vegar einhverjar leiðbeiningar um með hvaða hætti við
komum því á framfæri. Þurfum að læra hvernig kirkjan og einstakir fulltrúar fyrir hennar
hönd eiga í samskiptum við fólk í gegnum allar tegundir fjölmiðla sem og manna á meðal.
Þjóðkirkjan, stærsta fjöldahreyfing landsins á ekki og í raun má ekki vera svona oft á flótta
í umræðunni.
Betri samskipti eru aðeins einn liður af mörgum sem þarf að huga vel að þegar kemur að
því að rækta bakland kirkjunnar. Margt fleira þarf að koma til. Það er ákaflega mikilvægt
að þessi mál verði sett á dagskrá af fullri alvöru og það strax. Það er einnig á okkar ábyrgð,
góðir kirkjuþingsfulltrúar, að gera okkar í þessum efnum. Við þurfum að taka þátt í
þessum ræktunarstörfum sem Þorsteinn Pálsson brýndi okkur til.
Á síðasta kirkjuþingi var samþykkt ákvæði til bráðabirgða um að fresta mætti þingfundum
um allt að 6 mánuði. Kirkjuþing 2012 kom saman í þremur lotum. Fundurinn í desember
það ár var þó sérstaklega boðaður til að ræða mál sem snéri að gerð samkomulags við
ríkisvaldið, en annars voru þingfundir í nóvember og mars.
Fosætisnefnd leggur á þessu þingi til að þingsköpum verði breytt svo þetta verði áfram
heimilt.
Nú þegar við göngum til þingstarfa á þessu síðasta þingi kjörtímabilsins eru 31 mál á
dagskrá. Sum hver stór og þýðingamikil fyrir kirkjuna s.s. tillaga að nýjum þjóðkirkjulögum.
Það er mál sem lengi hefur verið unnið að á vettvangi kirkjuþings. Svo stórt mál þarfnast
vandaðrar umræðu bæði á þingfundum, í nefndum og eins utan kirkjuþings. Ábyrgð
okkar kirkjuþingsfulltrúa er mikil í því máli.
Þá eru auðvitað mál á dagskrá sem búast má við að kalli á mikla umræðu og að um þau
geti verið mjög skiptar skoðanir.
Verkefni okkar er koma öllum málum í farsælan farveg og leitast við að ná eins góðri
niðurstöðu og unnt er. Það er mikilvægt að við höfum heildarhagsmuni kirkjunar í huga
í hverju máli og gleymum ekki að það skiptir miklu að ná góðri sátt um niðurstöður. Því
þó skoðanir fólks séu skiptar og stundum sé tekist á í umræðum þá minni ég á að án efa
eru allir kirkjuþingsfulltrúar hér til að vinna að hagsmunum þjóðkirkjunnar af fullum
heilindum.
Dagskrá þessa þings verður nokkuð þéttari en stundum hefur verið áður. Einhverjir hafa
gert athugasemdir við forseta um það að dagskráin sé stíf aðrir fagnað því að dagarnir
séu nýttir til fulls. Við munum leitast við að halda þá dagskrá sem hefur verið kynnt en