Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Blaðsíða 42
42 43
kirkjuráð og vígslubiskup Skálholtsstiftis að skoða vel allar hliðar þessa máls og skuldbinda
kirkjuna ekki með nokkrum hætti, nema eftir víðtæka kynningu og umræðu og blessun
kirkjuþings. Kirkjuþing telur brýnt að rekstur Skálholtsstaðar komist í viðunandi horf og
skoðað verði ýtarlega hvort bygging miðaldadómkirkju/safnahúss geti orðið liður í þeirri
viðleitni, án þess að Skálholt sem helgistaður bíði hnekki. Kirkjuþing leggur áherslu á að
staðsetning og fyrirkomulag, verði af áformum, verði með þeim hætti að ásýnd staðarins og
andblær haldist og að rekstrarlegur ávinningur staðarins sé tryggður.“
Málið var þá til umfjöllunar í starfshópi þeim sem að framan greinir, sem skipaður var á
fundi kirkjuráðs í febrúar 2012.
Málið var síðan tekið fyrir á fundi kirkjuráðs í mars 2013 og komu þá fulltrúar verkefnahóps
um byggingu miðaldadómkirkju í Skálholti á fund ráðsins. Þá var rætt var um stöðu
og þróun verkefnisins og forsögu og kom þar m.a. fram að framundan væri vinna við
nákvæmari fjárhagsáætlun og jafnframt að gefa verkefninu skýrari línur.
Á fundi kirkjuráðs í apríl 2013 var eftirfarandi bókað:
„Á síðasta fundi kirkjuráðs var til umfjöllunar og kynningar staða mála er varðar
miðaldadómkirkju í Skálholti. Kirkjuráð lítur svo á að vígslubiskup í Skálholti, fram kvæmda-
stjóri kirkjuráðs, formaður fasteignanefndar þjóðkirkjunnar og Ásbjörn Jónsson hrl. hafi
óbreytt umboð til viðræða við forsvarsmenn verkefnisins.“
Staða mála var kynnt á næsta fundi kirkjuráðs í maí 2013.
Á fundi kirkjuráðs í júní mánuði 2013 var síðan eftirfarandi bókað:
„Miðaldadómkirkja.
Lögð var fram samantekt á niðurstöðum af samningaviðræðum fulltrúa kirkjuráðs annars
vegar og forsvarsmanna verkefnis um uppbyggingu tilgátuhúss i formi miðaldadómkirkju í
Skálholti hins vegar.
... Rædd voru ýmis álitaefni og áhættuþættir sem snerta verkefnið.
Kirkjuráð hefur nú kynnt sér niðurstöður verkefnahóps um miðaldadómkirkju í Skálholti.
Kirkjuráð sam þykkti að ganga til bindandi samninga við hlutaðeigandi um uppbyggingu og
rekstur mið alda dómkirkju í Skálholti á grundvelli niðurstaðna verkefnahópsins, með fyrir-
vörum um fullnaðar fjármögnun, staðfestingu kirkjuþings 2013 og samþykkt deiliskipulag.
Kirkjuráð samþykkti að gerast stofnandi að sjálfseignarstofnun sem fari með eignarhald
mannvirkisins.
Kirkjuráð mun leggja fram tillögu á kirkjuþingi 2013 samkvæmt framanskráðu“.
Samkvæmt því sem greint hefur verið hér frá hefur kirkjuráð lagt mikla vinnu í undirbúning
máls þessa.
Kirkjuráð lýsir vonbrigðum sínum yfir því að áhugamenn um byggingu tilgátuhúss í formi
miðaldadómkirkju í landi Skálholtsjarðarinnar hafa ákveðið að hætta við verkefnið.
Kirkjuráð lýsir áhyggjum sínum yfir því að umræður um málið hafi um of byggst á misskilningi
og rangfærslum, sérstaklega í ljósi þess að kynning málsins var skammt á veg komin.
Kirkjuráð vekur athygli á að kirkjuþing sem veitti verkefninu brautargengi árið 2011 og